Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

fimmtudagur, október 02, 2003

Velkomin á bloggsíðu Björns Rafnars.
Dadadadammm...
Vegna þess hversu hégómleg móðir hans er, verður skrifað um daglegt líf Bjarnarins hér en ekki á Barnalandi. Móðurinni finnst tónninn á Barnalandi oft svo undarlegur að hún vill ekki vera með þar. Skrifa heldur hér!
Hvað um það.
Drengurinn sefur vært í rúminu sínu núna. Við lögðum hann til hvílu þar kvöldið sem við komum frá Íslandi, ætluðum að venja hann við að sofa þar. Ég var nú ekki bjartsýn á að það tækist, var frekar viss um að hann myndi ekki sofa dúr fyrr en hann væri kominn undir sæng hjá mömmu sinni. Auðvitað svaf barnið, það var móðirin sem ekki svaf og fannst agalegt að hafa hann svona langt í burtu. Við sjáum hann sko ekki þegar við liggjum í rúminu okkar. Það er ekki pláss fyrir barnarúm við hliðina á okkar, þannig að hann er til fóta. Agalegt alveg. En hann sefur vært til klukkan fimm á morgnana að hann fer að svengja, þá er ég ekki sein á mér framúr að taka hann og hafa hann hjá mér undir hlýrri móðursæng. Tjah, það hefðu einhverjir sagt eitthvað á sínum tíma hefði ég sprottið svona fram úr rúminu þá.
Höfum annars haft nóg að gera síðan við komum heim til Dk. Vorum í mæðragrúppu í gær, og hittum hina ormana sem allir hafa stækkað og dafnað síðan við sáum þá í byrjun september. Í dag heimsóttum við svo vini okkar Ernu og Símon, sem líka hefur stækkað, Símon þeas. Á morgun förum við í Jónshús og stússum þar á vegum ÍFK og um helgina fer móðirin í frúarferð í Bilka með Heiðrúnu á móti. Þarf að skipta svefnburðarrúmi sem drengurinn fékk frá félögum í stjórn ÍFK.
Nóg að gera og gott að vera komin heim.
Meira síðar, kveðja fyrir hönd Bjarnarins, móðirin.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home