Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, október 02, 2006

Um allt það sem ég ætlaði að vera búin að skrifa.

Ég hef ætlað mér að skrifa hér í nokkurn tíma. Skrifa um hitt og þetta sem ég hef verið að hugsa, en það hefur ekki orðið að neinu.
Ég ætlaði að skrifa langa pistla um Stymma stakstein og svívirðingar hans í garð herstöðvarandstæðinga.
Um sjö ára krísuna sem við Kaupmannahöfn erum að ganga í gegnum. Við erum ekki enn komnar að niðurstöðu, en ætli það endi ekki með að ég verði og saman reynum við svo að finna út úr þessu.
Ég ætlaði líka að skrifa enn og aftur um kjör minnar stéttar í samanburði við kjör ,,kallastétta". Endalaus höfuðverkur hjá mér, og ekki bara höfuðverkur, kannski meira hjartaverkur. Ég þoli ekki enn mismunin á verðmætamati þjóðfélagsins, þoli ekki að peningar séu verðmætari en manneskjur.
Nú svo ætlaði ég að skrifa um lyfjafyrirtæki og rökleysuna í því að alltaf sé hægt að finna upp og búa til betri lyf og eyða í það óheyrilegum fjárhæðum þegar ekki er hægt að gera almennilega við þær manneskjur sem svo gefa þessi dýru lyf. Sem dæmi þá erum við með lyf fyrir uþb. tvær til þrjár milljónir danskar krónur á lagernum hjá okkur, og það er einungis það sem við höfum yfir að ráða dags daglega, þe. fyrir utan krabbameinslyfin sem koma sérblönduð til okkar auk annarra lyfja. Árslaunin mín eru svo í kringum 230 þús. danskar krónur! Róbert Wessmann er með yfir 40 milljónir ískr. í mánaðarlaun. Ég get ekki ímyndað mér hvað forstjóri Novo Nordisk er með, það þarf samt ekki að vera að hann sé með meir en Róbert.
Ég ætlaði líka að segja frá samtalinu sem ég átti við Björninn um lítil börn. Hann var alveg til í að við myndum eignast lítið barn, þá vildi hann bara vera pabbinn, og hvað átti þá að verða um Óla? Jú hann gætum við bara sent til Afríku...
Svo ætlaði ég að fagna öllum börnunum sem eru að fæðast í kringum okkur og skrifa hástemmdar lýsingar um fegurð og sakleysi ungviðisins. Læt mér nægja að segja að nýburi er alltaf kraftaverk, og getur ekki annað en snert streng í hjörtum allra sem um hann heyra.
Síðast en ekki síst ætlaði ég að ítreka það að ég er sannur rati þegar kemur að því að halda samskiptum við fólk, bæði nær og fjær. Það þýðir samt ekki að ég hugsi ekki hlýlega til þeirra sem ég þekki og hef gengið með í gegnum tíðina. Ég vona að þeir taki þetta til sín sem finnst ég heldur löt í að svara tölvupóstum og öðru. Ég hef ykkur öll in mente eins og við sjúkkur segjum.
Og einhvern daginn, sendi ég kveðju á þá sem eiga það inni, einhvern daginn.
Lifið vel.

7 Comments:

At 12:09 e.h., Blogger SL said...

Það er svo gaman þegar þú skrifar....alveg eins og það séu komin jól:D

 
At 6:32 e.h., Blogger Regína said...

nákvæmlega, alveg hátíð í bæ

 
At 11:54 f.h., Blogger Frú Elgaard said...

VVVVVVVVVVWWWWWWWWWAaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhh buuuuhuu, sakna þín óskaplega mikið, snökt!!

 
At 1:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

lummukaffi heima hjá mér um helgina elskuleg vinkona....ertu nokkuð að vinna???
konan ská á móti

 
At 12:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

æðislega var gaman að hitta ykkur þó það hefði nú ekki verið mikið en hittingur samt - lifið í lukku elskurnar en ekki í krukku þó þessi wessmann sé með svona mikil árslaun, en ég er næsta viss um að hann er ekki eins happy og þú.
ástarkveðjur frá fróni.

 
At 1:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hm...ég sá Wessmann í labbitúr hér í hverfinu með barnið sitt. Og hann leit út fyrir að vera mjög mjög hamingjusamur....
En elsku Ingibjörg mín, ég vona að ég sjái ykkur hér yfir hátíðarnar, veit ekki hvort ég fæ tækifæri til að segja þetta í kommenti við annað blogg, því þetta blogg er með rólegra móti þessa dagana..

 
At 11:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mikið var að þú skrifaðir. Það er nú einu sinni þannig að fólk kemur sér upp ákveðnum hring á netinu, þ.e. ákveðnum síðum sem það heldur sig við í þessum aragrúa af upplýsingum sem hægt er að finna þar. Ævintýri Bóbós er ein af fáum síðum sem ég nenni að lesa en það er heldur leiðinlegt þegar hún er uppfærð á margra mánaða fresti. Girtu brók kona. Sjáum ykkur vonandi um jól. Bið að heilsa eskimóanum og Bóbó!

 

Skrifa ummæli

<< Home