Örferð til Íslands í örstuttu máli.
Ég og rándýrin fórum til Íslands og stoppuðum of stutt. Ég fékk magakveisu og var frá í hálfan annan sólarhring, Úlfur eyrnabólgu og hlaupabóluvírus í kerfið, sem einmitt braust út sl. laugardag. Það var svolítið kalt, svo kom snjór og örugglega rigning, man það ekki svo gjörla, og svo gekk á með éljum og þá vorum við með Heiðrúnu í Þrengslunum nestuð vatni og Tomma og Jenna kexi. Við stolkkuðum aðeins Trúðana og tókum ESK með í það. Þeir félagar Bóbó og Einstein slóugust með sverðum, spiluðu tölvuspil og horfðu á mynd. Við fengum tvisvar lasagna og tvisvar kjötbollur. Úlfur borðaði mest hafragraut og minnst annað. Hörður Rafnar litli frændi er mjög sætur og vakti hjá okkur lukku. Ömmurnar bara hressar, Starkaðarhús á Stokkseyri er uppáhaldshúsið mitt í augnablikinu, sérstaklega í ljósi þess hverjir búa þar um þessar mundir. Ég fór á tónleika Söngskólans í R og heyrði litlu frænku syngja undurfallega og leika með eins og hún hefði ekki gert annað. Í Gufunesi var enginn söngur, en gott að koma og kveikja ljós fyrir galla. Svo borðuðum við aðeins kleinur og fórum aftur heim.
Set inn nokkrar myndir, ánægjunnar vegna.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home