Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Morgunblaðið 31.janúar 2006

Það hlaut að koma að þessu!


Tímaskyn
þessa hóps er oft slakt.“ Rack segir
að mörg börn sem haldin eru dyscalculiu
geri sér einfaldlega ekki
grein fyrir tímanum. „Þau eru oft
sein, áætla að gera eitthvað en hafa
litla tilfinningu fyrir tímanum sem
það mun taka að framkvæma það
sem áætlað er.“ Þetta brenglaða
tímaskyn virðist vera í tengslum við
það að talnablindir eru ekki alveg í
sambandi við líkamsklukkuna sem
býr í okkur öllum. „Það gerir þeim
erfiðara fyrir að halda sig á réttri
braut og skipuleggja sig.“ Þetta fólk
gerir sér kannski ekki fullkomlega
grein fyrir muninum á milljón og
hundrað; að milljón felur í sér miklu
meira en hundrað.
Einn hópur þeirra sem eru með
dyscalculiu á erfitt með að átta sig á
tengslum hluta í rými. Sumum þeirra
getur reynst erfitt að lesa landakort.




„Þeir sem eiga heima í þeim hópi
eiga kannski erfitt með að átta sig á
hvar þeir eru staddir og hvernig umhverfið
snýr við þeim. Þeir villast
auðveldlega, beygja í öfuga átt og
hlutir snúa öfugt við þeim. Þessi hópur
getur líka átt við lestrarerfiðleika
að stríða og þeim getur reynst erfitt
að muna hvernig stafir og tölur eiga
að snúa. “ Rack segir að stærðfræði
spili stórt hlutverki í sambandi við
áttaskyn fólks. „Fólk þarf að geta
áttað sig á hnitum, lögun lands, þríhyrningum
og ferhyrningum, öllu
sem tengist rúmfræði. Þeir, sem
skortir skilning á tengslum hluta í
rými, eiga í miklum erfiðleikum með
öll þessi hugtök í stærðfræði.“
Rack leggur áherslu á að dyscalculia
feli í raun í sér mörg ólík atriði.
„Talnablindir eru alls ekki allir í
vandræðum með að skilja kort eða
hafa tímaskynið í ólagi. Þeir eiga hins
vegar í erfiðleikum með stærðfræði í
skóla.“ Það getur verið mjög niðurdrepandi
fyrir þá sem eru með dyscalculiu
að fást við verkefnin sem fyrir
þá eru lögð.

2 Comments:

At 5:41 e.h., Blogger Frú Elgaard said...

OOOg...

 
At 10:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta útskýrir samt ekki hugmyndir þínar um að sjá ekki í þrívídd. Húsmóðirin í Huskvarna segist þjást af sama kvilla. Ég hef reynt að skipta út tölustöfum fyrir epli til að auðvelda dæmi sem ég er að útskýra fyrir henni en það hefur engin áhrif. Hún horfir bara á mig, tómum en ákaflega góðlátlegum augum, brosir og spyr svo. "Ha?"

 

Skrifa ummæli

<< Home