Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

sunnudagur, janúar 29, 2006

Hér er ég

á janúarbömmer. Sem betur fer kemur febrúar eftir þrjá daga. Þá hækkar sólin enn meir á lofti og styttist þar með enn meir í vor og sumar.
Týrólaferðin var skemmtileg. Það var kalt og sérlega í íshöll Jónu Bjargar en við innbirgðum hitaeiningar í samræmi við það og gengum okkur til hita þess á milli. Það fór ekki mikið fyrir jóðli en grátöskur Björns Rafnars í fjallasal koma sterk inn sem staðgengill jóðls. Jónu leið að eigin sögn eins og heksu þar sem hún þeyttist með hann á sleða niður kræklótta brekku, með sól snjó og vind í andlitið og öskrandi barnið aftan á. Ég rann á eftir þeim í hysteríuhláturskasti yfir því hvað þetta var gaman um leið og ég vorkenndi Birninum og Heksunni fyrir að þurfa að renna hvort með öðru.
Þetta var hápunktur ferðarinnar, fyrir utan það náttúrulega að vera með Jónunni og ræða við hana um hjartans mál, mittismál, magamál, erlend mál, íslenskt mál og önnur mál.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home