Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, október 24, 2005

Kvennafrídagur og spítalasaga.

Kvennafrídagur í dag á Íslandi, og ekki minnst orði á þetta góða framtak í heimspressunni í DK. Það var svo sem auðvitað. Hér má hundur Drottningar ekki leysa vind án þess að íslenskir fréttamenn þefi það uppi á veraldarvefnum og setji inn á sína miðla með það sama. Einu fréttirnar tengdar Íslandi í dönskum fjölmiðlum eru fréttir tengdar uppkaupum á dönskum og evrópskum fyrirtækjum. Skrýtið. Ég væri til í að lesa um það í dönskum fjölmiðli að nú hefði Golsa frá Þverá borið þremur lömbum í einu þriðja árið í röð. Eins væri ég til í að lesa um viðburð eins og átti sér stað í dag, þar sem að yfir fimmtíuþúsund manneskjur fjölmenntu til að minna á það að enn eru störf karla og kvenna utan heimilis ekki metin til jafns. Það kannski kemur á morgun, ég mun rýna í Pólarann eftir fréttum norðan úr hafi.
Annars er ég komin í hóp útivinnandi kvenna, fyrirvinna að auki. Hef fyrir tveimur karlmönnum að sjá. Það er alveg að gera sig. Ég er sátt og glöð með starfið, en á stundum stressuð og með kvíða. Ég er svo hrædd um að gera eitthvað fatalt. Þær, kollegur mínar, segja að það muni rjátlast af mér. Maður lærir að lifa með ábyrgðinni. Þetta er eins og að eignast fyrsta barnið, maður fær kvíðaköst af áhyggjum og stressi yfir allri ábyrgðinni sem kemur með barninu, en svo vex maður með barninu eins og öðrum verkefnum.
Björn vill gjarna koma með á spítalann, þar sem mamma hans er dagana langa. Hann var lagður inn á barnadeild á Amager spítala fyrir tveimur vikum vegna þess sem Danir kalla ,,falsk strubehoste" til eftirlits og lyfjagjafa. Spítalavistin átti vel við hann. Nóg af plássi til að leika, hlaupahjól, risalest, kubbar, fjarstýrðir bílar, fullt af bókum, hafragrautur með sméri og síðast en ekki síst ís til að kæla hálsinn. Þetta fannst honum alveg fyrirtak og vill gjarnan fylgja mér á spítalann. Skilur ekki alveg þegar ég segi honum að ég sé að fara á annan spítala. Um daginn bað hann mig að syngja fyrir sig; það vantar spítala það vantar sög það vantar...Sætt.
Þar til næst áfram konur! og menn.

2 Comments:

At 12:47 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sammála, ekki nóg með það, 20% íslensku þjóðarinnar var úti að arka, hátt upp í 40% kvenna! Geri aðrir betur :)

 
At 8:18 e.h., Blogger Frú Elgaard said...

Jebbs við stelpurnar vorum á staðnum, reyndar komumst við ekki langt vegna mannfjöldans og fórum því bara í kaffi og vöfflur hjá Obbu en eingu að síður vorum við þarna mæðgur. Vildi að þið hefðurð verið þarna líka. Ég sakna ykkar.

 

Skrifa ummæli

<< Home