Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, október 05, 2005

Sá á kvölina sem á völina.

Í gær á hádegi var ég stödd í jómfrúarferð í verslunarmiðstöðina Fields sem gæti útlagst á dönsku, Mark, en hugmyndasmiðum hefur eflaust þótt smartara að hafa þetta uppá ensku, nema hvað. Hringir þá síminn og Therese frá Ama´r spítala kynnir sig og býður mér hálfs árs stöðu á barnadeild spítalans. Rúmum sólarhring áður hringdi Anne frá Riget og bauð mér ótímabundna stöðu á blóðmeinadeild Ríkisspítalans. Þá þurfti ég að fara að velja og hafna. Ég fékk valkvíða tilfinninguna í nokkrar mínútur og ræddi það við konuna á móti meðan við völsuðum um í musteri mammons, en kannski einmitt vegna þess að ég var stödd þar, þá valdi ég öryggið sem fylgir því að fá fastráðningu. Ég er sátt við mitt val, og sátt við að hafa haft val. Það gerði heilmikið fyrir sjálfið, ég sá hvernig ofursjálfið túttnaði út og belgdist allt af ánægju og stolti yfir sjálfu sér. Loksins hef ég lært að selja mig! Það tók nokkrar tilraunir, en hófst að lokum. Allt er gott sem endar vel, og ég hlakka til að mæta í vinnu á spennandi og framsækinni deild á morgun, 6.október. Lýkur þar með fimmtán ára sögu minni í tímabundinni vinnu, um leið og ný hefst, ótímabundin.

7 Comments:

At 4:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jú sko ég fékk tilboð um fastráðningu á ríkisspítalanum,en átti eftir að fara í viðtal á barnadeild, þar sem mér bauðst staðan, en staðan sú var einungis afleysingastaða í 6 mánðui, þannig að ég tók fastráðninguna á blóðmeinadeild ríkisspítalans. þannig að þegar ég skrifaði að ég væri búin að fá vinnu, þá var ég í raun ekki búin að játast henni alveg, en nú er ég búin að því.
takk fyrir að segja sæta strákinn líkjast mér. :)
kærar kveðjur til london i

 
At 5:12 e.h., Blogger SL said...

Oh hann Björn...ég gæti étið hann....

 
At 5:13 e.h., Blogger SL said...

Hann Björn...ég gæti étið hann...

 
At 7:24 e.h., Blogger Frú Elgaard said...

Elsku vinkona tilhaaamingju, visseda! Þú er lang flottust! Vildi að ég væri hjá þér að halda upp á þetta.
fjórtán faðmlög og kossar
frá Frú Elgaard eðalbíleiganda!

 
At 7:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sko mína, O-DUBBUJÚ!!! Þetta gat hún ,litla sílið. Til hamingju!!

 
At 2:08 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gvuð hvað hann er sætur!! En endilega linkaðu mig!!Ég er búin að gera þig án þess að spyrja, vona sé í lagi!!

 
At 11:11 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku!!!! Það er ekki á færi hvers manns (eða konu) að landa djobbi svona rétt nýskriðin úr námi - svo þú mátt sko alveg tútna og tútna út af stolti. Svo geturðu bara tútnað út af öðrum ástæðum þegar þú ert búin að vinna í einn tvo mánuði í föstu stöðunni þinni ;þ

 

Skrifa ummæli

<< Home