Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

laugardagur, ágúst 06, 2005

Barnsfæðing á Eyrarsundsgarði.

Brúðkaup um síðustu helgi, og barnsfæðing um þessa. Hvað gerist næstu helgi?
Ég er svo heppin að nágrannakonan, þeas. þessi við hliðina, fór af stað rétt áður en ég kom heim úr vinnunni í gær, svona upp úr hálftólf. Klukkan 01.58 kom í heiminn lítill stelpuungi sem heitir Ida Line. Hún er ósköp lítil og krumpuð, enda fædd tveimur vikum fyrir tímann, mamman dreif hana út og var komin í uppvaskið í morgun. Alveg mögnuð kona. Alveg mögnuð lífsreynsla líka. Stórkostlegt að sjá fyrsta andardrátt manneskjubarns. Ég svaf með bros allan hringinn í nótt, og hugsaði bara fallegt og gott.
Þetta er yndislegt líf...

6 Comments:

At 11:25 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

bíddu varstu viðstödd fæðinguna??? dóra

 
At 1:22 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

já já. kona með reynslu!

 
At 11:19 f.h., Blogger Frú Elgaard said...

og svo nú ég!

 
At 4:22 e.h., Blogger SL said...

Vá en frábært! Góð byrjun á hjúkkuferli!

 
At 6:16 e.h., Blogger Lilja said...

Vá heppinn!!! Bara í svefnherberginu???

 
At 11:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

já það er alveg frábær byrjun á hjúkkuferli að vera viðstödd vellukkaða fæðingu. þetta veit bara á gott! í gamla svefnherberginu þína lilja! :)

 

Skrifa ummæli

<< Home