Löngu búin að skila.
Skilaði fyrir viku síðan. Það var mikill léttir. Pessimistinn Ingibjörg Hrefna sá þó kjörið tækifæri til að hefja kvíðatörn mikla fyrir munnlega prófinu. Það fer að koma tími á optimiastann BibbuBé inn á heimilið. Kellingin sú er alltaf létt í lund.
Annars bara stuð á bænum. Við Björninn fórum til Lundar í Svíþjóð í síðustu viku og samfögnuðum þar frænku okkar sem varð stúdent. Frábær veisla, fullt af mússík og mat. Það átti vel við okkur. Svo voru líka kisur stórar og litlar (þessar litlu ganga venjulega undir heitinu naggrísir, en í Bjarnarmunni verða þær litlu kisur), og einn hundur sem var ákaflega spennandi.
Gestatörn sumarsins fer að byrja og er það vel. Samfleytur gestagangur sýnist mér frá 29.6 til 30.7. Nú er að finna upp á einhverju skemmtilegu að gera. Kannski maður skelli sér í Tívolí, Bakken og Dýragarðinn. Hver veit...


1 Comments:
Dugleg stelpa....knús
Skrifa ummæli
<< Home