Einn af þessum dögum.
Angurværðin og auminginn í mér alveg í hámarki. Égurnar tvær rífast um það hvor þeirra sé ómögulegri, heimskari, ljótari, feitari. Gamlar myndir og minningar sækja að, aumingjahrollur og bros í gegnum tárin til skiptis. Björninn minn sem grét svo sárt þegar ég skildi hann eftir í morgun. Veðrið svo fallegt, en um leið svo þrúgandi. Einn af þessum dögum þegar maður veit ekki hvort maður á að fara eða vera. Líður um í tilfinningahjúp og finnst maður eiga ósköp bágt, en veit um leið maður á bara alls ekki neitt bágt. Enga skýringu að finna á þessu hugarróti, nema þá að ritgerðarskil nálgast óðum, og vinkonan sem var kvödd fyrir hádegi. Kveðjustundir bera alltaf með sér íhugun og angurværð. Tíma til að sökkva sér aðeins í sjálfan sig og hugsa um lífið eins og það er, var og hefði getað orðið. Ritgerðarskil sem nálgast bera með sér ósætti við eigin aumingjaskap og ræfildóm. Hvurslags andskotans hálfvitagangur og vitleysingsháttur er þetta manneskja, segi ég við sjálfa mig, um leið og ég vorkenni mér svolítið fyrir að vera allt í senn, aumingi, ræfill, hálfviti og vitleysingur.
Já svona eru sumir dagar!


6 Comments:
Elsku Bibban mín, svona svona. Bara koma í gang. Ekki eyða tíma í einhvert bull sem á eingan veginn við rök að styðjast. Þú er snillingur og mikilmenni, merkileg og mögur. Kúl og með karisma og bara almennt uppáhalds og hana nún og love you!
já, mín kæra, tek undir með frú Elgaard, þú ert svo langt frá því að vera jafn slæm og þú vilt vera láta. Ég skal reyna að vaða inn til ykkar með kjaftagangi eins mikið og ég get, þó ég viti vel að það kemur enginn í staðinn fyrir Birtu.
Svo er ég tilbúin í uppbyggilegar gönguferðir í vorkvöldunum, hvenær sem er, ef þær veita þér ánægju.
svona svona... eitt skref í einu kynsystir kær.... og sumir dagar eru bara verri en aðrir.....
en allir hinir sætari.... eins og þú!
Mér finnst þú æðisleg kona!
ég þakka.
þið eruð nú ekki sem verstar heldur!
I wish U were here.
Skrifa ummæli
<< Home