Sumarhringrás
Langt liðið á sumar, ég er löngu búin að lesa upp og konan á móti líka, Björninn þægur og góður og veðrið gæti ekki verið betra.
Ég sit enn við tölvuna við að klambra saman BS ritgerð. Mikið hlakka ég til þegar þeirri vinnu lýkur. Sá í dag auglýsta stöðu á fæðingardeild, ætla að sækja um. Það var mjög ´alvöru´að hringja og fræðast nánar um stöðuna.
Er á leið með Björn til læknis. Hann er alltaf með einhver útbrot á kroppnum og hálskirtla eins stóra og mylluhjól. Kannski skýringuna á umskiptum og veikindum sé þar að finna?!
Úti á túni áðan sátu óléttar konur síðasta sumars með afrasktur á arminum. Einni af óléttu konum þessa sumars varð þá að orði að svona ætlaði hún að vera næsta sumar! Svona er þessi hringrás um sumur.


4 Comments:
Bara brilliant...finnst þér það ekki?
ó jú bara brilljant! hlakka til að bætast í hópinn-aftur...
Fyrr en síðar ikke?
hmm ha jú. ætli ekki.
Skrifa ummæli
<< Home