Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Ekki var það kossageit.

Ruglaðist alveg í ríminu og röflaði um kossageit. Rýndi svo í ritin og komst að hinu sanna. Ræddi og rökfærði og er málið enn að kanna.
Svona kann ég nú að stuðla.
Nema hvað, Björninn var ekki með kossageit, því hún veldur sárum í kringum munninn. Það er enn á huldu um kossasótt, eða einkirningssótt eins og hún er kölluð í daglegu tali, þar sem að litlir krakkar fá yfirleitt ekki önnur einkenni en slæma hálsbólgu! Það kemur í ljós eftir fimmtán ár.
Veðrið leikur við okkur þessa dagana, þannig að nú sitjum við sem fastast úti á róló og tölum á heimspekilegum nótum við vini og kunningja. Eða ekki. Heimsspekin fer í það að úthúða Dönum og þeirra búraukratí og kvíða því samtímis að yfirgefa þessa paradís og fara í raunveruleikann ´heima´.
Björninn orðinn hress semsagt, gleymdi að bæta því við. Skapið reyndar ekki alveg eins hresst og það mætti vera. Tekur hraustlega til tára sinna þegar þannig stendur á. Við rjúkandi ráðalaus rífum okkur í hár...byrja ég aftur.

1 Comments:

At 8:02 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

En afhverju kossageit, koss vitum við öll hvað er en geit, slíðurhyrnt jórturdýr sem er með mörgu líkt sauðindinn og af sömu ættkvísl. Kossakind, kossasauður, kossaá, kossarolla, kossahaða,kossaær(ef maður hefur veriða að kyssa kvenkyn) kossahrútur, kossahafur (ef maður hefur verið að kyssa karlkyn)...bara spá....

 

Skrifa ummæli

<< Home