Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

þriðjudagur, mars 22, 2005

Búlghhharía

Búlgaría á morgun.
Byrjum daginn í afmæliskaffi hjá Erni á þriðju, svo bara vagninn út á völl, versla ákavíti, vesenast með vegabréf, og svo bara vúpps, komin. Ég hlakka mikið til. Jafnvel þótt að bróður þætti ekki nauðsynlegt að koma með sólarvörnina. Ég var aðeins farin að ganga of langt í óskhyggjunni. Það skiptir samt ekki öllu hvernig veðrið er, bara vera hress og ekkert stress!
Annars alltaf sama stuðið hér. Vorum boðin í stórkostlega veislu í gær. Þar var framreitt af augljósri þekkingu, hin sívinsæla hráfiskkássa á jólasalatsblaði, ný versjón og ekki síðri hinni fyrri, dádýrakjöt með unaðslegri kartöflumús með hvítlaukseggjum, villisvepparjómasósu og spennandi waldorfssalati, og síðast en ekki síst var boðið upp á páskaegg nr.1 frá Nóa Síríus í eftirrétt, viðkunnanlegt bragðið vakti upp gamlar minningar. Eftir mat var hafist handa við almenn heimilisstörf, og eftir að búið var að rútta til, hófst Singstar partý-aftur! Það skemmtu sér allir konunglega í því, og ég líka, en ég er bara svo vita hæfileikalaus þegar kemur að söng að gamli frammistöðukvíðinn gýs upp og allt fer í rugl og á endanum skemmti ég mér ekki eins vel og til stóð.
Ég er að hugsa um að hafa spurningakeppni í næsta partýi hjá mér. Þá get í það minnsta tekið þátt.
Annars! Farin til Búlgar. Sést hér aftur eftir páska, vonandi með farteskið fullt af sögum.
Gleðilega páska.

2 Comments:

At 1:21 e.h., Blogger Heiðrún said...

Já, ég pant vera með þér í liði í spurningakeppninni..og bæ ðe vei, hvenær er eiginlega næsta partý????? Annars gleymdi ég að segja þér að ég hitti Sigurbjörn á 22 um helgina....segi betur frá því næst. En farðu nú að drífa þig heim!

 
At 8:25 e.h., Blogger bjorn said...

naesta party eftir bulgar.
hlakka til sibba sogu.
jonni ok. ibud.
er a netkaffi med seinvirkustu tengingu i heimi.
gaman her. allt i skit og drasli. en gaman.
kem bradum.

 

Skrifa ummæli

<< Home