Kosningar í konungsríkinu í dag. Fuss á það.
Síðastliðinn laugardag mátti varla þverfóta fyrir Dannebrog sem blakti við hún um alla borg (ég er einmitt mjög oft á gangi við hún), nema hvað. Ég lít í dagbókina mína, dönsku, til að athuga hvaða merkisdegi fósturjörðin sé að fagna. Og jú jú, ekkert minna en afmæli dönsku krónprinsessunar Mary Elisabeth. Auðvitað var flaggað og spaggað af því tilefni. En í dag, þegar þjóðin fær að velja sér þingmenn sem svo mynda ríkisstjórn voru veifudruslur á strætó og ekkert annað. Ekki einu sinni á Kristjánsborg var svo mikið sem einn fánatittur, fyrir utan Friðarvaktarfánann sem er búinn að vera síðan innrásin í Afganistan hófst, (man einhver eftir henni?), það er nú ekki einu sinni Dannebrog sem þeir flagga, heldur hommafáni sem á stendur Pace!
Svo kjósa þessir kjánar aftur sömu ribbaldana yfir sig. Algerlega ómeðvitaðir um það að verið sé að búa til her staðfastra þjóða sem hlusta ekki og taka ekki tillit til neinna í kringum sig. Hugsa um sinn hag og engra annarra. Mikið er það gott að bæði landsmenn móðurjarðar og fósturjarðar séu sammála. Maður ruglast þá ekki í ríminu við að flytja til móðurjarðarinnar. Allt á sömu bókina lært þar. Við verðum að passa að aðrir verði ekkert ríkir svo við getum orðið ríkari. Fuss.
Það eina sem ég sé móðurjörð í hag er að þar er hátíð þegar kosið er til þings. Kosningar fara fram á laugardegi. Fáninn blaktir í maísól, allir fara í spariföt og fullt af dýrindis kökuborðum um allan bæ. Það gerir lýðveldið dýrmætara þegar maður klæðir sig upp til þess að sinna skyldum sínum sem þegn þess.
Björninn er alvarlega farin að ýfa upp heimilsfriðinn og þekkt umburðarlyndi foreldranna með því að krefjast þess að hlusta á Donny djöful dagana langa. Ég tel að ævidagar Donnys í þessari fjölskyldu séu brátt taldir... Annars þekkir hann stafinn sinn litli snillinn. Segir; Bee Bóbó! Merkilega gáfaður barnið!


5 Comments:
Sko er þetta bara ekki eins með Anders F. Rasmussen, Davíð Oddson og Bubba Morteins....fólk man bara eftir þeirra andlitum þegar á að kjósa eða kaupa hljómplötur (cd SL heitir það víst í dag) .... Það eru þeir sem trana sér fram alls staðar. Sumir með rauða málingu út um allt....
Bara svona pæling.
Bóbó er SNILLINGUR
Hann kann líka að segja "Heiðrún dansa". Bara snillingar segja það.
Nei Heiðrún...silungar segja það!
Ó!
Sko SL. nú er þú búin að gera son minn að silungi.
Ég veit ekki hvað mér finnst um það. Mér finnst í lagi að vera Björn, en ég þarf aðeins að hugsa um hitt. Helst vil ég samt að þú kallir hann bara snilling. Ók?
Og farðu svo að koma þér hingað með ormana þína. (svo silungurinn geti etið þá?, nú hætti ég)
Skrifa ummæli
<< Home