Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, september 06, 2004

Var bara dissuð í kaf út á leikvelli áðan, fyrir að standast ekki fögur fyrirheit. Hrmpf. Aðaldissarinn var ólétta konan á sjöundu hæð, sem benti réttilega á það að hún hefði kannski minna að gera en ég! Einmitt, situr heima og bíður eftir að fæða barn meðan hún hugsar um miðbarnið sitt og pakkar búslóðinni. Hvað er það, miðað við mig. Sem er í óðaönn á framabraut, í námi, vinnu, með heimili og fjölskyldu og blaaaaaahhh...Fannst ég verða að segja eitthvað!

Nú já já. Fórum í sveitina í gær. Björninn sá belju og tudda, ær og lamb, hest og ekki fleiri dýr. Lék sér að hálmi og steinum, sólbrann í framan, borðaði apríkósur og banana, fór á hestbak og varð pirraður í hjólinu á leiðinni heim. Hann var svo þreyttur eftir allt saman að hann svaf sleitulaust í tólf tíma, og þurfti vakningu í morgun.

Ég fór á spítalann í dag. Held að þetta sé ljómandi góð deild að vera á. Voða vel tekið á móti okkur og allir svo glaðir með þetta. Gaman gaman.

5 Comments:

At 6:03 f.h., Blogger Skrukka said...

Jæja gamla, hef ekki kíkt hingað í langan tíma og loksins loksins eru komin skrif. Til hamingju með árin þrjátíu fyrir næstum tveimur mánuðum.....maður er orðinn svo kalkaður, ég gleymdi að muna eftir stórafmælinu, sorrísorrí og knúsknús.

 
At 7:14 e.h., Blogger Heiðrún said...

Sama ólétta gellan og dissaði þig, lagði fyrir mig í morgun þannig að ég komst ekki af stað fyrr en allt of seinnt. Og í ofanálag fékk ég amk tvo bmarbletti útaf essu!

 
At 8:57 e.h., Blogger bjorn said...

alveg ótrúleg gella!

 
At 11:31 f.h., Blogger Regína said...

og við bíðum og bíðum og bíðum......

 
At 12:44 e.h., Blogger SL said...

L0V JÚ TÚ DARLINGS
sú ólétta á 7-undu

 

Skrifa ummæli

<< Home