Og fer þá loksins eitthvað að gerast.
Litli Björn er að breytast snögglega í Stóra Björn. Breytingarnar felast aðallega í frekjuköstum ýmiss konar. Hann kastar sér aftur á bak, slær til okkar og slær jafnvel sjálfan sig, skrækir á okkur og brestur í grát. Allt ef hann fær ekki það sem hann vill þegar hann vill.
Samt er hann náttúrulega ágætastur. Er húmoristi mikill og nýtur þess að vekja á sér athygli með hvers kyns apalátum. Honum fer fram í skilningi með hverjum deginum, en eitthvað er fýsíkin að þvælast fyrir honum, eða kannski frekar jafnvægið. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir okkar þá neitar hann að ganga einsamall. Það er tilefni til bakkasta og skrækja ef við gerum okkur líkleg til að losa um vísifingurinn úr lófa hans. Hann reiðist okkur mikið og lætur öllum illum látum þar til við fullvissum hann um að við munum ,,abba" með honum á heimsenda og tilbaka. Við þá fullvissu brunar hann af stað og æðir með okkur í eftirdragi þangað sem fýsilegast er að fara þá stundina.
Sjálf er ég svona eiturhress! Byrja í skólanum á morgun, og er eins og alltaf með eilítinn kvíða í maganum. Ég er að byrja í starfsnámi á Ríkisspítalanum fer á Hæmatologiska deild, ætli hún heiti ekki Blóðsjúkdómadeild uppi á Ísalandi. Þar fara fram lækningar á hvítblæði með meiru. Ábyggilega mjög lærdómsríkt, en að sama skapi erfitt. Ég er búin að móttaka bréf um hitt og þetta sem ég að lesa fyrirfram og eins um það hvernig starfsfólkið vinnur saman og styður hvort annað í því að styðja sjúklingana. Jamm, þetta verður lærdómsríkt.
Nú og svo er allt annað bara fínt. Hef um það nokkur áform að stunda skrif reglulegar á þessa síðu. Af því tilefni bætti ég tjellingunum fínu sem búa í nágrenni við mig inn á línkalistann. Nú geta allir sem vilja fræðst um líf okkar hérna á kollegíinu. Stundum veit ég samt ekki hvort það eru einhverjir aðrir en þær sjálfar sem lesa þær sjálfar. Það er allavega kommentað á víxl og vaxl (sbr. tvist og bast) af þeim sjálfum, en sjaldnar sem að utanaðkomandi hafa eitthvað út á skrifin að setja. Það er þá líka bara allt í lagi! Við getum þá sagst hafa frétt fréttirnar þegar við hittumst, sem er svona tíu sinnum á dag!
Vúpps. Pabbinn er sko ekki tjelling, það er bara hann Óli minn!


3 Comments:
Við eigum ekki vini fyrir utan kollegið....mórall:(
En til lukku kelling að vera farin að blogga...
Jæja, fyrst þú segist ætla að blogga eitthvað, færðu að vera með á minni síðu.
Sko mína! Líst á þig!
Skrifa ummæli
<< Home