Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

föstudagur, mars 12, 2004

Já já. Svona um það bil sirka bát einn mánuður síðan síðast. Björninn sofandi í bæli sínu. Fór í dýragarð í dag og gubbaði þegar hann sá nafna sína kljást. Sá líka ljón og apa og fíla og fleiri dýr. Fannst Anna Björg og Dóri samt miklu skemmtilegri og áhugaverðari en þess dýr öll. Þau brostu sko á móti.
Nóg búið að strita og starfa undanfarnar vikur. Móðir er í starfsnámi á lokaðri geðdeild, þar kennir ýmissa grasa... Faðir í vinnunni sinni, og Björninn í pössun. Hrafnhildur er enn hrellir, í hans augum, og suma dagana er hann alveg í vandræðum með það að hún skuli babbla og skríða og toga í hann og svo framvegis. Elín segir að hann sé í mestu stuði meðan hún sefur. Hann hlýtur að fara að herðast drengurinn!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home