Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Bóbó Bjarnar eitthvað hálf slappur. Nú finnst mér hann allt í einu alltaf vera lasinn. En hann er það nú síður en svo. Fékk hita tvisvar í einn dag, og hefur verið með svoldið kvef og hósta núna í tvo daga. Agalega leiðinlegt samt. Ég vorkenni honum svo mikið, af því að hann skilur ekkert afhverju hann er lasinn, óó og ææ.
Er búin að vera á þverfaglegu námsskeiði í vikunni. Með komandi sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, meinatækni og tveimur komandi hjúkkum til. Það er alveg gaman sko. Við skiljum bara ekkert hvað meinatæknirinn komandi er að gera þarna, og hún sjálf síst af öllum. Vikan gengur út á fyrirbyggjandi og upplýsingar. Það eina sem hún gerir er að taka blóð og rannsaka það. Hún er frekar pirruð að þurfa að vera með. Kærastinn er á leið til Írak að tuska Saddam til á föstudaginn og hún vill bara vera heima að passa hann.
Elín barnapía er svo dugleg að hún er búin að setja myndir af Birninum inn á heimasíðuna hennar Hrafnhildar á barnalandi.is. Hún heitir Hrafnhildur Arnardóttir. Þar má semsagt sjá myndir af Birni í pössun. Voða fínar myndir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home