Erum hér.Foreldrarnir báðir heimavinnandi sem þýðir að okkur verður ekki nokkur skapaður hlutur úr verki. Hér er ráfað um húsið fram eftir morgni og svo er allt í einu ákveðið að nú sé komið nóg og ákveðið að rjúka út, en fyrst þarf að skipta á Birninum og gefa honum að borða, og eins gott að við fáum okkur bara líka bita, nú er hann sofnaður? þá er best að bíða, má ég kíkja í tölvuna? já og ég á eftir! og svo er klukkan orðinn fjögur og við ekki farin út og Björninn svangur aftur og við þurfum að fá síðdegiskaffið okkar og svona gengur þetta bara...
Tókst samt að laga nokkuð til áðan í litla herberginu í dag, sem er einmitt nákvæmlega jafn stórt og hitt herbergið en heitir samt litla herbergið. Á morgun verða boraðar upp hillur fyrir skólabækur og fleira og þá fer þetta að verða ansi fínt.
Á morgun þarf ég líka að fara í skólann. Á mæta kl. 9.10 út á Bispebjerg sem er svona 7/8 kílómetra héðan. Svona langt hef ég ekki hjólað síðan í vor, og þess vegna kvíði ég þessari ferð mikið.
Björn Rafnar verður með föður sínum í fyrramálið. Ég held að hann sé mjög sáttur við það. Hann er voða hrifinn af pabba sínum þessa dagana. Nennir helst ekkert að tala við mig þegar hann er hjá Óla, hrmpf! Nei allt í lagi og bara voða gott.
Og veriði bless í bili!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home