Skil bara ekki í þessu tæki. Þ.e. tölvutækinu sem étur upplýsingar sem ég skrái inn á hana, étur og lætur þær hverfa í sæberspeis. Skil ekkert í þessu.
Björn Rafnar skilur heldur ekkert í þessu. Hann skilur til dæmis ekki hvar fólkið er ef við erum að hlusta á mússík. Lítur í kringum sig og í áttina að hátölurunum í þeirri von að þeir birtist honum sem syngja til hans. Hann skilur heldur ekkert í því af hverju gatið, sem er kannski 2x2 sm í þvermál, á veggnum ofan við sófann svarar honum aldrei. Hann stendur oft í fanginu á mér og spjallar og sprellar, hlær og lætur öllum látum í von um svar, en gatið brosir bara þögult við honum.
Frekar fyndið.
Hjúkkan kom í dag og mældi og vóg. Hann er 69 sm og 7200 gr. Það er bara fínt. Helst eiga svona ungar að tvöfalda fæðingarþyngd fyrstu sex mánuðina og það virðist ætla að takast, vantar bara 400 gr. upp á það. Ekki meiri áhyggjur af þyngd ungans semsagt.
Við mæðgin vorum ein heima um helgina. Gerðum ekki mikið. Og þó, fórum í veitslu á laugardag og afmæli á sunnudag. Nágrannarnir buðu í strútakjöt sem er alveg ljómandi gott, sér í lagi sé því skolað niður með hvítvíni (!). Frúin á móti er nefnilega með svo mikla gigt að hún vill ekki rautt, þannig að við hin fylgjum bara með og skálum í hvítu. Alveg fínt fyrir mér.
Svo var félagi Óla með afmæli á sunnudaginn. Við mættum seint og fórum snemma, þurftum að taka á móti föðurnum og bróður hans frá Svíþjóð. Þeir komu aldeilis færandi hendi. Með pólskan bjór og pólskt prins póló. Nammi namm. Björninn fær nú ekkert af því. Bara mjólk og hrísgrautur með perum handa honum.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home