Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, desember 03, 2003

Það er nú meiri vitleysan í þessu bloggi. Allt í einu kemur bara allt í vitleysu. Nú skrifa ég upp það sem ég skrifaði í gær. Hér hefur nú ýmislegt gerst síðan síðast. Kannski en ekki gerst, meira veriðgert.
Til dæmis fór öll fjölskyldan til Svíþjóðar um helgina. Fórum þangað í­ tvennu lagi, en komum heim í­ einu lagi. Óli fór áður en sólin vaknaði á laugardaginn til Málmeyjar að hitta Þórð Hrólf bróður sinn og vinna fyrir hann og með honum. Við Björninn fórum svona um hádegisbil á sunnudegi að hitta Hrabbý og Tobba í­ Lundi. Drukkum þar jólaglögg, og gæddum okkur á allskyns góðgæti með. Björninn fékk að vanda mjólk og smá spónamat um kveldið. Hittum svo föðurinn á lestarstöðinni um kvöldið og fórum heim með honum.
Á laugardeginum meðan Óli var í­ Svíþjóð fórum við aðeins á jólamarkað í Jónhúsi og þaðan í vinnuna hans Óla þar sem að Heiðrún var að taka upp myndina um konuna sem lifir í draumaheimi. Ég var sko nefnilega að leika eina af fjórum (fimm)Värtineen sem er finnsk gæðapopphljómsveit frá áttunda áratugnum. Var þar í fríðum flokki Frú Elgaard, Steinu og Siggu Lísu. Birta frænka var í aðalhlutverki og hét þar af leiandi Stjarna allt kvöldið. Voða gaman að þessu...
Fórum í gær og heimsóttum Martin, Ernu og Símon. Strákarnir litlu eru aðeins að fá auga hvor fyrir öðrum. Björninn varð mjög ákafaru þegar þeir lágu hlið við hlið og hann náði taki á eyra Símonar.Fannst það bæði þægilegt og skemmtilegt að grípa í. Sló svo öll met þegar hann var kominn með einn fótinn af leikgrindinni hans upp í sig. Hélt með annarri hendi og nagaði löppina á kvekyndinu eins og hann mest mátti. Roarr!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home