Nú, nú. Haldiði ekki að fyrsta tönninn hafi fundist í dag. 12.janúar er dagurinn. Vinstra megin miðju í neðri góm, nr 1- samkvæmt gamla danska kerfinu og 41 samkvæmt alþjóðlega kerfinu. Foreldranir ekki búinir að kaupa tannbursta ennþá. Stefnan tekin í Fakta á morgun, þar eru einmitt fullorðins tannburstar á tilboði. Uppgötvaði mér til skelfingar fyrir nokkru (!) að tannburstinn sem ég er með í notkun er einmitt sá sem ég tók með mér á spítalann 6.júlí síðastliðinn. Veit ekki afhverju ég er ekki búin að skipta, hef kannski haft einhverja óljósa hugmynd um að eitthvað þessu líkt myndi gerast og þar af leiðandi...
Veðrið var loks gott í dag eftir að hafa verið leiðinlegt undanfarið. Snjór, rigning, snjór kuldi. Danir eru sem betur fer heimsmeistarar í snjómokstri þannig að maður finnur ekki verulega fyrir því þó að snjói hér. Sérstaklega eru þeir duglegir að ryðja fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, sem er eitthvað annað en við kynntumst á Íslandi í kringum jólin. Þar verð ég því miður að játa að Hafnfirðingar standa sig áberandi verr en Reykvíkingar þegar kemur að snjómokstri á gangstéttum bæjarins. Svei! Það er skömm að þessu. Ætti nú ekki að vera mikið mál að kenna snillunum í áhaldahúsinu á lítinn traktor með ámoksturstæki.
Helgin var fjörug. Faðir fór á barinn með Camma og hinum Össunum, kom seint heim og var ekki til viðræðu fyrr en löngu eftir hádegi. Þá komu Kata og Christian með Matthildi, ásamt móður og Birni rjóð og frískleg úr löngum göngutúr um ruddar gangstéttir Ama´r eftir að hafa leikið drjúga stund á einum af risaleikvöllum sömu eyju. Eftir að hafa hresst okkur á kaffisopa og brauðborði hér var ákveðið að hittast yfir kóladrykk og pítsumat hjá þeim. Við hjónin hófumst handa við að baka og mættum svo í Joðið og föttuðum loks alveg afhverju við erum 15 til 20 kg. þyngri en vinir okkar. Pítsan þeirra var með þunnum botni, einföldum osti, smá grænmeti og túnfiski. Okkar var með þykkum botni tvöföldum osti plús feta, og ábyggilega 6 eða 7 áleggjum!
Sunnudagur jafn sódómískur, í þetta sinn með Ernu og Martin sem partnera. Brunch frá ellefu til fjögur. Kumpánarnir Björn Rafnar og Símon léku ekki mikið saman. Horfðu hvor á annan þó og reyndu að taka í eyru, hendur og hvaðeina annað sem hægt var að ná tökum á. Símon rústaði Birninum algjörlega í tanntöku, er komin með þrjár og fjórðu á leiðinni, (við vissum ekki af nr. 1- fyrr en í dag).
Hann er sofnaður núna angalanginn. Er yfirleitt alveg uppgefinn um átta, og sefur þaðan til sjö daginn eftir. Algjör snilli!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home