Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

miðvikudagur, maí 05, 2004

Nú já.
Eftir sex daga komum við Björninn til Ísalands. Verðum frá mánudagskveldi til laugardagsmorguns. Styttra gat það varla verið. Heldur ekki ódýrara. 478 dkr. kostar farið fyrir okkur bæði, með uppáhalds flugfélaginu okkar næsland express
Þeir sem vilja og geta mega endilega koma heim til mömmu fimmtudaginn 14.maí. Þá verður heitt á könnunni og kannski pönnslur með.
Björninn er í banastuði. Lærði að skríða fyrir tveimur vikum og þeysist núna um gólfin og tætir allt sem má ekki tæta, og líka það sem má tæta. Voða duglegur. Með skriðinu kom uppistand. Þannig að núna reysir hann sig í rúminu sínu á kvöldin þegar hann á að fara að sofa og umlar og mumlar þangað til við komum og kíkjum á hann. Þá skríkir hann og hlær af ánægju og segir úúúúú af tómri hamingju. Ef við leggjum hann niður breytist ánægjúið í bjarnarbröl eins og maður segir á dönsku (brøler som en bjørn), og hann sperrir sig og vindur upp á sig og sýnir okkur á allan hátt óánægju sína með þessa meðferð á sér. Kominn krakki í barnið!
Sólin skín skært á okkur Hafnarbúa þessa dagana. Við sitjum þar af leiðandi dagana langa úti á leikvelli ásamt nokkrum hinna eitthundrað landa okkar sem búa hér á Eyrarsundsgarði og slúðrum og slefum í okkur kaffi og vatni og øli og hverju því sem í boði er. Alveg hreint ágætt líf.
Á morgun fer ég í skólann. Í nýja bekkinn. Þar þekki ég engan og er þar af leiðandi í nettu kvíðakasti núna. Þoli ekki að koma á nýjan stað og þurfa að kynna mig og segja hver ég er og endurtaka nafnið mitt mörgum sinnum til þess eins að enda á því að vera Inge Bjørk, hende den der islandske pige...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home