Fórum á flóamarkað í dag og ætluðum að athuga með bílstól í hjólið. Fundum engan bílstól. Keyptum þá bara í staðinn eldhúsborð og fjóra stóla við. Voðalega fínt Tekk, með leðursessum á stólunum. Hægt að lengja það beggja megin frá þannig að það nær enda á milli í eldstofunni okkar. Við þurfum sko að halda 10 manna fondú boð eftir páska, og það hefði sko engan veginn gengið með gamla borðinu. Við höfum reyndar setið við það meira eða minna sex fullorðnir og fjögur börn, en í fondúboði eru tíu full. og sex börn. Það sér það hver maður að það myndi aldrei ganga upp.
Nema hvað. Fundum ekki stól í hjól, en þá vildi bara svo skemmtilega til að H+S á móti eiga stólinn hans Arnaldar Goða ennþá og komu með hann yfir ganginn í dag. Aldeilis sem það bættist við stóla heimilsins í dag.
Rigndi bókstaflega eins og hellt væri úr fötu fyrripartinn í dag. Feðgarnir nýttu sér það og sváfu frameftir öllu. Björninn reyndar vaknaði stundvíslega rúmlega sjö og fékk að drekka. Fórum svo fram rúmlega átta þannig að hann gæti nú fengið grautinn sinn svo hann gæti sofnað aftur! Agalega þreyttur Björn. Hann hefur reyndar bisað við það alla helgina að velta sér yfir á magann. Tjah, maður er nú ekki orðinn áttaoghálfs mánaða fyrir ekki neitt...Er orðinn nokkuð seigur við, best gengur honum veltingurinn þegar hann liggur í rúminu okkar. Dýnurnar náttúrulega mjúkar og gefa eftir. Nú hlýtur þetta samt að fara að koma hjá honum!
Gleymdi að minnast á tennurnar tvær sem eru komnar í ljós í efri gómi. Heyrði hann gnísta tönnum svo sker í á föstudaginn. Og viti menn. Eru ekki tvær tönnslur búnar að brjóta sig í gegnum góminn. Nú er bara að gefa honum harðfisk.
Þar til næst. Farveller.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home