Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, mars 15, 2004

Vorið kom í dag. Með sætum sumarvindi, sterkri sól og fullt af fólki út að labba.
Björninn fór með föðurnum í pabbaklúbb snemma í morgun. Þeir fóru í Remiseparken sem er leikdýragarður ekki langt frá okkur. Voru þar í vellystingum með kaffi, kex og júgúrtu fram yfir hádegi. Fjölskyldan fór svo öll í metró niður á Kóngsins Nýjatorg og gekk þaðan inn á Strik, upp Kaupmangaragötu inn Rósenborggargötu þaðan yfir Gothersgötu og þvert í gegnum Kóngsins garð að Austur Veggjagötu númer 12. Þar fengum við okkur kaffisopa eftir að hafa fengið leiðsögn um nýtt safn Jóns Sigurðssonar af Jóni Runólfssyni. Héldum síðan heim á leið í kvöldsól sem endaði í smá skúr, sem hlýtur að hafa verið hitaskúr.
Dásamlegt alveg að fá þetta blessaða langþráða vor. Björninn borðaði vel af stöppuðum kartöflum og fiski í kvöldmat. Hefur hingað til ekki verið neitt sérstaklega hrifinn af stöppuðum kartöflum, vill fá þær í bitum og ekkert kjaftæði eins og amma Þorbjörg myndi segja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home