Mikið langt síðan síðast.
Uppgötvaði sjöundu Bjarnartönn í dag. Hún er hægra megin í neðri góm. Ný tönn hefur ekki fundist síðan í byrjun apríl, og þar af leiðandi eru þetta stórmerkar fréttir!
Grúppuvinnan er alveg að gera sig, eða ekki. Ég er svoleiðis búin að sitja á mér og hugsa eitthvað fallegt meðan stúlkurnar þvæla og rugla og skrifa vitleysu vitlaust og gera mér gramt í geði. Alveg magnað hvað framtíðar kollegar mínir eiga ekki við mig. Ég veit ekki alveg hvernig ég ætla að fara að því að endast í faginu um ókomin ár. Það er mín eina von að hjúkkur séu skemmtilegri á Íslandi. Kannski er það heldur mikil bjartsýni...En samt, Íslendingar eru skemmtilegra fólk en Danir. Nú og ef að allt þrýtur þá er bara að ráða sig á næturvaktir á elliheimili, þar er maður í það minnsta einn með sjálfum sér. Það er heppilegt fyrir mig hvað ég er nú skemmtileg! Heheoghoho.
Lólí og Bóbó koma til Ísalands í lok júlí og verða í átta daga. Þeir ætla að vera fyrir austan í sumó ef einhvern langar að berja Bóbóinn augum. Ég ætla bara að vinna og vinna meðan á þessu stendur. Legg ekkert í að vera hérna heima á meðan þeir eru í burtu. Það er að ég held bölvanlegt.
Við fengum góða gesti um helgina. Eddu og Kjartan. Þau komu tvö í helgarferð barnlaus með Vísakort. Voða gaman. Fóru í heim í gærkveldi sólbrennd og sæt, með allt nýtt og búinn að gasa fyrir árið. Afsökuðu meira að segja vindganginn á gestabókarmyndinni. Við afsökum það auðvitað. Svona skemmtilegur félagsskapur má alveg vinda upp á sig á okkar heimili, það er verra þegar heimilisfólk tekur upp á svoleiðis. Þá fjúka nú fúkyrðin í takt.
Sumarið lætur á sér standa. Það kíkti gær, rétt til þess að brenna gestina og fór svo aftur. Spáin næstu daga hljóðar upp á kólnandi, vindandi og rignandi. Meiri vitleysan. En þá er heldur enginn afsökun fyrir því að sitja ekki inni og lesa fyrir munnlega vörn sem fer fram í lok mánaðar.


2 Comments:
æ, gangi þér vel í vörninni! Voðalega skil ég þig vel með þessa hópavinnu. Hún er ákaflega þreytandi, þ.e. hópavinnan og vitlausa vitleysan sem er skrifuð. Ætli við endum ekki báðar í næturvinnum á elliheimili???
já það er sko komin júlí hér.... á ekki að fara skrifa fleiri fréttir eða gerist kannski ekki mikið þarna í köben..... hmmmmm
Skrifa ummæli
<< Home