Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, janúar 17, 2005

Nýtt ár! Gleðilegt ár.

Allt í góðu í okkar koti. Helgin nýliðna alveg ótrúlega skemmtileg. Byrjaði á ritgerðarskilum á föstudagsmorgni. Svo Amager Senter ferð með konunni á móti, bjór á Kongelunden til að jafna sig á öllum innkaupunum, hárspenna, nærföt, næla og kjóll auk þess sem Heiðrún keypti.
Björninn sóttur og skilað í aðra pössun skömmu síðar. Boð í Sendiráðinu klukkan átjánhundruð. Eins og að ganga inn í jarðarför sagði Heiðrún. Ekki fyrr en komu að tölu skáldsins að lundin fór að léttast. Léttist til muna þegar farið var að bjóða veitingar. Léttist svo upp úr öllu valdi þegar komið var á Fingurbjörgina á Kristjánshöfn. Mikið var gaman. Það var bara svo gaman. Mikið hlegið og sungið og skálað og ræðuhöld og ræræræræræ. Takk fyrir stórkostlega skemmtan þið sem voruð þarna stödd.
Laugardagur til lukku. Gekk um með bros á vör með barnið í vagninum og sólina á himninum. Sunnudagur hófst með sælu. En allt í einu undir kvöld helltist yfir mig angist og kvíði. Yfir hverju veit ég ekki. Ónot og óþægilegar hugsanir. Eins og maður geti aldrei tekið því að lífið gangi vel. Að allt sé í gott, allt gangi vel, og allt miði til hins besta.
Hef þetta að sjónarmiði framvegis.

7 Comments:

At 1:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já en stundum gengur bara vel. Það er allt í lagi og það þarf ekki að þýða að eitthvað slæmt sé á næsta leyti.
pollýana

 
At 5:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er fínt að vera í smá blús öðruhvoru! Ef ekki yfir sjálfum sér þá bara öðurm .... alveg fínt. Er það ekki þannig sem stórskáldin eru? Eimjandi úr eimd og volæði og ekki skaðar að vera svolítið drykkfeld! muhahahahah
AAAAAAAAAaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaamarulla!

Frú Elgaard

 
At 7:29 e.h., Blogger SL said...

Þori aldrei að hoppa yfir þig á listanum þó bloggin séu ekki mörg...gott að ég gerði það ekki í dag. Ég var alveg komin með þér undir sólina í Köben í huganum mmmmmm Alveg týpískt þetta með áhyggjurnar....rifjum upp lagið dont worry be happy og dönsum um aðeins íklæddar slæðum og deginum er reddað!

 
At 9:27 e.h., Blogger bjorn said...

já það er bara að dansa þetta af sér.
takk fyrir skjót svör.
gaman að fá þau sisvona alveg óvænt

 
At 11:16 e.h., Blogger Regína said...

vei vei vei...meira blogg! Og sammála öllu hér að ofan.

 
At 1:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jammsa skutla rithøfundur... thetta er allt um skipulagid og hafa jafnvægi a hlutunum.. thad verdur alltaf ad vera plus og minus..... tha er jafnvægi..... godar stundir annars og muna svo ad eta ekki hnetur !!!

 
At 5:25 e.h., Blogger SL said...

Til hamingju með smásagnaverðlaunin!!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home