Nú er ég svoleiðis aldeilis að bíta höfuðið af skömminni(?!). Ég held að hálsbólgukvekyndið sé að koma aftur. Ekki vinstra megin, ó nei hægra megin í þetta skiptið. Flutti sig bara yfir ganginn, bölvuð.
Ástæða þess að ég þarf að bíta höfuð er nefnilega sú að ég klikkaði á pensilíninu. Klúðraði því að klára skammtinn. Eins og ég er búin að lesa mikið og tala mikið um gildi þess að taka lyf rétt, klára skammtana og svo framvegis. Það kom hjá okkur helgi, og þá fer allt í vitleysu og enginn man neitt af því sem hann á að gera. Alveg agalegt hvernig maður nær að tapa öllum þráðum um helgar, eyðir svo vikunni í að rekja þá saman, til þess eins að tapa þeim aftur næstu helgi. Nú krossa ég allar fingur og tær í þeirri von að pensilínið sem ég byrjaði á aftur í dag, nái að drepa þessa bévítans baktússur.
Kuldinn er kominn. Andstyggilegur sem fyrr. En nú er bara rúmur mánuður í að það fari að birta, og ekki nema tæpir fimm mánuðir í vorið. Þetta kemur allt saman. Innipúkinn hefur aðeins verið að ná tökum á mér. Ég nenni ekki út úr húsi eftir að heim er komið. Kúldrast bara í kringum sjálfa mig og veit ekki hvað ég á af mér að gera í leiðindum mínum. Bregð oftast á það ráð að sofna í sófanum. Meiriháttar stöð á minni!
Nú þarf ég bara að bregða mér í betri skónna og njóta þess sem veturinn hefur upp á að bjóða af listviðburðum og öðrum viðburðum.
Í gær hélt ég smá fyrirlestur og var fyndnust af þeim sem töluðu. Það er jákvætt, og gott! Gaman að því...
Björninn minn er líka nokkuð jákvæður og mjög fyndinn. Martin vinur okkar kom í mat í gær, og Bóbó alveg í stuði fyrir gesti. Skoppaði og skríkti um alla stofuna, voða gaman.


3 Comments:
Jamm, ég sendi hálsbólguna að hluta til aftur yfir hafið, hitinn og beinverkirnir fengu að vera kjurrir. Gott að deila byrðinni stundum, sértaklega svona andstyggilegri flensu....
Ussufussusussuþvuss. Er það nú að senda til baka það sem maður hefur fengið sent, en halda aftur hluta.
Fussususs!
"Hálsbólgukvekyndið" hefur látið mig í friði í þó nokkurn tíma, en eitt er víst, ég mun aldrei tala um hálsbólgu aftur!
Skrifa ummæli
<< Home