Ó mig auma. Undanfarna daga hef ég háð stranga baráttu við milljarða á milljarða ofan, sem enga miskunn hafa veitt. Þær hafa beitt mig öllum þeim brögðum sem þær kunna, gert mig sára og sljóa og bólgna og auma. Mitt eigið tromp, hitinn, snérist upp í andhverfu sínu og gerði mig að skjálfandi, slefandi, og enn sljórri aumingja. Þá var brugðið á það ráð að leita aðstoðar. Keik kom ég heim úr aðstoðarleit með 14x1milljarð í litlu boxi og hóf leiftursókn með það sama. Hún virkaði nokkuð vel. Hitinn dró sig í hlé, sá að hans tími var útbrunninn, og sljóvginn hvarf að nokkru með honum. Nú á einungis eftir að vinna bug á bólgunni sjálfri, eyrnaverknum sem fylgdi í kjölfarið, eitlabólgunum á utanverðum hálsinum, og óþægindum í kjálkum og tungu vinstra megin í munnholi. Seinni tíma vandamál munu vera, þurrsprungnar varir alltof mikil svefnþörf, ólesnar bækur, tapaður vöðvamassi(!) og örugglega eitthvað annað sem ég man ekki í augnablikinu. Það kemur í það minnsta enginn heill út úr svona stríði!
Swingklúbburinn Sigrún eins og konan á móti nefndi okkur svo skemmtilega hefur lokið skyldum sínum í Jónshúsi þennan mánuðinn og habbði svei mér þá ágætt upp úr öllu streðinu. Í byrjun desember leggjum við land undir fót og förum á Fars og mors aften á Hotel Kong Valdemar í Vordingborg. Það sem ég held það verði gaman. Þar er allt ad libitum, vín, matur, bjór, vín, brennivín, kampavín, hljómsveit, vín og aðeins meira vín. Þetta verður alveg æðisgengið og á ábyggilega eftir að slá alveg í gegn.
Juuhh ég hlakka svo til!!!
Bjarnarbauninn hress bara. Svoldið svona að pæla í hinu og þessu. Segir mikið huuuhhh, svona langt og aumt um leið og hann bendir á allt! Segir líka Tasja þegar ég spyr hvort við eigum að koma til Lisbethar sem er dagmamman. Natasja er gullfallegt stúlkubarn sem er líka í pössun hjá Lisbethu. Ég veit ekki hvort hann er svona hrifinn af henni, eða hvort nafnið er svona þæglilegt að bera fram. Hann segir eitthvað í líkingu við Anka þegar hann er að tala um Arnald. Það er ekki alveg eins auðvelt í framburði.


7 Comments:
Ég dreg þá þá áliktun að þú sért aum vinstramegin í VELUM og hugsanlrga í PHARNYX líka. getur það staðist?
ég hef sko ekki hugmynd um hvað velum er, pharynx er hinsvegar barki, eða loftrörið. mér er nú ekkert svo illt þar, meira svona vinstra megin i cavum oris.
já munnholinu, en velum er sko....æ ég nenni ekki að ná í bókina :)
Æji, greyjið litla. Láttu þér nú batna. Eins gott að vera ekkert að hætta sér niður á fyrstu hæð í pestina þar. Það er varla að maður þori í lyftuna.
Skammastu þín....þú smitaðir mig!!!! Ég las bloggið þitt á fimmtudegi og á föstudagi var ég fárveik, með skæðustu hálsbólgu ever, fussumsvei.
Mikill er máttur hálsbólgu minnar. Hún hefur sko alveg látið sig hverfa héðan. Og aukaverkanirnar allar með. Það er helst svefninn sem er eitthvað að stríða mér.Ég er reyndar ekki þekkt fyrir annað en að vera svefnelsk kona, þannig að það er spurning hvort hálsbólgan hafi nokkuð með það að gera.
Afsakið Skrugga, ég er nú samt aðeins stolt að hafa sent hana cæber yfir hafið!
isssssssssssh það liggur alveg í augum uppi hvað Bóbó er að segja þegar hann segiir Anka. Auðvitað er hann að segja nafnið mitt. Skil ekkert í þér að hafa ekki dottið þetta í hug fyrr kerling! (hnuss) Komum annars til Köben í febrúar í afmæli tengdamömmu og tökum að sjálfsögðu ungann með okkur.
Kossar til Ólans og Bóbó frá Vörðustígsklaninu.
R(Anka)
Skrifa ummæli
<< Home