Allt að gerast.
Birta afmæli í dag. Ótrúlega gömul miðað við aldur. Af því tilefni verður efnt til afmælishófs í okkar koti í kveld. Startar átjánhundruð með fordrykk. Við vindum okkur svo beint í aðalréttin sem gæti vel verið forréttur, en alls ekki fordrykkur, Hráfiskkássa a la Óli bróðir (Heiðrúnar). Eftirrétturinn er svo syndsamleg súkkulaðikaka með hindberjarjóma. Hmm sé það núna að mér finnst syndsamleg mjög klámfengið orð. Sé fyrir mér Lollítu og karlfausk. Hvaðan koma mér þær hugmyndir?
Eftir að hafa höfgað maga og huga með mat og drykk verður öllu frekara höfgi sleppt, en þess í stað setjum við okkur í partýgír og gerum klárt í Sing star Partý! Tókum general í gær og ég sökkaði feitt. Fékk mörg awful og mjög mörg bad og bara eina cool stjörnu. Heiðrún fékk mjög margar stjörnur. Hún syngur mjög vel. Óli vildi alls ekki syngja. Kata fékk fleiri good en awful, en aungvar stjörnur held.
Ég ætla samt ekkert að láta awful stoppa mig. Syng bara víst. Og ef fólk þolir það ekki þá verður það bara að fara. Sing star partý verður eins og fyrr sagði haldið í mínum húsum. Hah!
Djöh. hvað ég skal syngja mikið.
Hlakka til!


4 Comments:
Ég skal gef þér stjörnu, Ingubjörg mín, þú mátt eiga allan karsvagninn. Hana!
Sko Ingibjörg maður getur ekki verið bestur í öllu....aðalmálið að vera með
Ætli við verðum ekki bara saman awful í kvöld.........
Elín
Sko, kona góð, það þýðir ekkert að vera að hóta Steinu og svo gerist ekkert á þínum vígstöðum. Koma svo kerli mín!
Skrifa ummæli
<< Home