Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

fimmtudagur, mars 17, 2005

Dagur þrjú.

Dagur þrjú í ritgerðarvinnu. Ætla að byrja á inngangi á eftir. Það er gott skref að taka. Las ráð sem vinur vinkonu minnar gaf vinkonu sinni sem er einmitt vinkona vinkonu minnar, allavega, ráðið fólst í því að skrifa í það minnsta eina síðu á dag. Þá upplifir maður það í það minnsta sjálfur að vera að vinna, og vonandi slæðist eitthvað vitrænt inn.
Er annars búin að setja mig í samband við leiðbeinandann minn, Inger Minnasdatter. Hún er búin að senda mér tvö löng tölvubréf með ráðum og dáðum. Talaði mig endanlega ofan af því að taka viðtöl, eða eiga samtöl við sjúklinga. Það væri alltof erfitt...Hmmm. Til þess að geta nýtt sér svona viðtöl þarf að fara í gegnum svo langan prósess til að afla leyfa fyrir því að taka viðtölin, og síðar að nýta sér þau í ritgerðina. Það þarf leyfi frá siðfræðiráði(?) og læknaráði og svo þarf að gera viðtals leiðbeiningar og ég veit ekki hvað ég er að röfla þetta, þekki ekki einu sinni þessi hugtök á íslensku.
Að öðru.
Eftir viku verðum við fjölskyldan stödd í stuðbænum Dúbnitsíja, sem er einmitt heitasti bærinn í Suðaustur Búlgaríu. Ég hlakka gasalega mikið til. Ekki minnkaði tilhlökkunin þegar Skarphéðinn bróðir minn hringdi í gær, og upplýsti veðurspánna fyrir næstu daga.
Tuttuguogfimmgráður darling. Ég æstist svo mikið við að skrifa ofangreint að ég hringdi í téðan bróður til þess að vita hvort við ættum að taka sundföt með. Hann kvað já við því og sagðist geta farið með okkur í heilsulind. Víha...

Bjarnarskinnið er að koma til. Sprellaði og lék á alls oddi í morgun. Tók bara eitt brjálæðingskast, var annars bara fyndin og skemmtilegur eins og honum er lagið. Hann er mikið í því að smyrja sig með kremi þessa dagana. Vill helst stöðugt vera í smurningu, sem leiddi auðvitað til þess að við urðum að taka á þessu, (!) þannig að nú fær hann vaselín í dós kvöld og morgna og dundar sér við það í lengri tíma að punta sig og vera fínn.
Orðaforði og skilningur eykst, kom í gær til mín. Mamma, skipta bleyju, kúka! Jamm

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home