Páfi mín og fleira
Dagur tíðinda.
Týndir lyklar konunnar á móti fundust. Bál slökkt í trjádrumbi í bakgarðinum. Skráð í málningarsamkeppni. Drukknir þrír kaffibollar. Allt þetta fyrir klukkan tíu, fyrir utan náttúrlega þetta vanalega, koma sér og sínum á fætur, sjóða og gefa graut, hella upp á könnuna með meiru, síðan varla söguna meir.
O, þó, er búin að lesa Moggann spjaldanna á milli og tárast yfir minningargreinum um Einar Braga, tárast yfir horfnum tíma þegar menn uppgötvuðuð nýjar stefnur og gerðu byltingar. Tárast yfir ládeyðunni í minni kynslóð, sem er kannski ekki svo mikil, það á bara eftir að skoða hana í sögulegu samhengi. Táraðist líka aðeins yfir því að þekkja ekki neitt af verkum Einars Braga, veit það eitt að hann þótti gott skáld. Hér er komið verkefni fyrir nýútskrifaðan hjúkrunarnema.
Ég táraðist hinsvegar ekkert mjög mikið yfir andláti Páfans í Róm. Fyrir það fyrsta var það nokkuð viðbúið, og í öðru lagi þá finnst mér skrýtið að það er ekki nokkur maður sem nefnir íhaldssemina og kredduna í karli. Hann hélt til dæmis fast í það að banna bæði notkun getnaðarvarna af öllu tagi og fóstureyðinga til handa konum sem eiga ekki annarra úrkosta völ.
Fyrir utan smáatriði eins og að banna konum að verða prestar og banna prestum að kvænast.
Það tekur því varla að nefna það! Á meðan hann hélt utan um heilagleikann héldu prestar, biskupar og kardínálar utan um hvorn annan og litla kórdrengi í lostafullum leikjum!
Mér finnst þetta svoldið skrýtið...
Björn Rafnar sem heitir Bóbó hjá sjálfum sér, er á MÍN aldrinum. Allt er mín og vei þeim sem vogar sér að hreyfa við mín. Ég er samt bara ánægð með hann. Það er gott að hann svarar fyrir sig og lætur vita af sér. Hann hafði alveg tilhneigingu til að láta allt yfir sig ganga, þannig að þetta er hið besta mál. Nýjasta partýtrikkið er ´tveggja ára í júlí', segir þetta fremur óskýrt með báðar hendur og alla putta fram í stað þessara tveggja þarna. Hmm þurfum að þjálfa það aðeins betur.


2 Comments:
þetta er allt í lagi vinkona, ég tárast stundum líka....þó mest yfir fylgikvillum minnar háttstígandi elli. en ég heyrði reyndar minnst á bönn páfaheitins í að sjálfsögðu hinni einu sönnu víðsjá á rúv....
Heyr heyr......já bara við öllu þarna! Sérstaklega með kynslóðina og páfann. Jamm og puttana.....það var gott innlegg líka.
Komiði ekkert heim í sumar?
Skrifa ummæli
<< Home