Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

fimmtudagur, mars 31, 2005

Óhversdagsleiki.

Fimmtudagur og hversdagsleikinn í hámarki, eða ekki. Hversdagurinn er eins óhversdagslegur og verið getur um þessar mundir. Við hjónin heima meira og minna, nýkomin úr fríi, alltaf einhver að kíkja við, alltaf einhverjara gleðifréttir að berast okkur, alltaf stöð alltaf gaman.
Ég er alveg að fara að taka ritgerðina föstum tökum. Vantar bara herslumuninn. Er í dag búin að skrifa þokkalega þrjár línur og lesa fjórar síður, og klukkan ekki hálfellefu hér hjá okkur! Tsss...

Búlgaría var ótrúlegt land að heimsækja. Eymd og volæði yfir öllu, en fólkið sem við hittum svo gott, blítt og viturt. Lætur hlutina ekkert slá sig út af laginu, gleðst yfir því góða og reynir að lifa með því slæma. Ó bara að þetta væri manni gefið.
Björninn vakti geypilukku hvar sem hann kom. Var enda í miklu stuði allan tímann. Fékk digestive kex, ís og súkkulaði og endalaust mikið af sírina sem er búlgarska útgáfan af fetaosti. Hann prísaði sig sælan með þetta og launaði með því að vera fyndinn og sætur. Þráðurinn var reyndar orðinn heldur stuttur, og ef að hlutirnir bárust honum ekki alveg um leið var voðinn vís og stutt í grát og gnístran tanna. Allt jafnaði sig þó um leið og eitthvað ætilegt barst honum...
Segi sögur síðar.

1 Comments:

At 9:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

http://www.chilinet.dk/default.asp?id=411&qid=15

tekkaðu á essu I´m getting there

 

Skrifa ummæli

<< Home