nýmálaðurgangurvsmononuklose
Auðvitað virkaði ekki myndaforritið þegar setja átti inn mynd af Skorranum. Hef ekki haft nokkurn einasta tíma til að athuga málið. Hér hefur verið starfað og stritað síðustu daga.
Búið að klínisera ganginn okkar í L100, svo fólk þekkir sig ekki. Allir orðnir voða grannar og sætt, drukkum saman bjór, fórum í mat hjá ofurfólkinu við hliðina á og svona grannastöff. Hún upplýsti mig um það ungfrúin í 102 að ekki einungis er hún ljósmóðurnemi langt gengin með fjórða barn, hún er einnig fyrsta danska konan til að klára orgelsmíðar og að auki er hún orgelleikari. Man, hvað ég fékk mikinn frammistöðukvíða þegar hún sagði mér þetta!
Nema hvað. Bjarnarskinnið á annars hug minn allan. Veikur, á ný! Nú sennilega með kossageit, mononuklose, Epstein Barr vírus. Fórum til læknis áðan, sem sagði bara, ´hans hals ser ud ad herrens til' . Litla skons. Ekkert hægt að gefa honum við þessu annað en stíl og ís. Hann fær hvorutveggja og vatn inn á milli. Neitaði reyndar ísnum í kvöld, spurning hvort foreldranna laumast í skjóli nætur og treður í sig ís fársjúks barnsins...


1 Comments:
til hamingju með nýja ganginn... góð hugmynd með hankana...
en greyið bjarnarunginn.... við mæðgur óskum honum hins besta bata og vonum að það verði eitthvað eftir af ísnum handa honum næsta kvöld....mæðgur í F-inu
Skrifa ummæli
<< Home