Gleðilegt sumar.
Sumardagurinn fyrsti í dag og stóri bænadagur á morgun. Við næslandar í Kaupmannahöfn höldum vitanlega upp á báða dagana. Kosturinn við að búa í útlöndum!
Hérbúandi skáld, þe. undirrituð, konan á móti og kettlingurinn Ólafur Haukur munu lesa úr verkum sínum í Jónshúsi í kvöld. Allir velkomnir á mikin sumardagsfögnuð.
Björninn á að fara í pössun til Flóka og foreldra. Hann vill meina að Flóki heiti ekki bara Flóki heldur líka flóðeettur, sem er einmitt útlegging á orðinu flóðhestur. Á morgun tökum við svo bara letina á þetta, borðum hvede og sleikjum sól, nammnamm.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home