Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

laugardagur, júlí 23, 2005

Bakk on the trakk.

Eda ekki. Er búin ad týna íslensku stöfunum á tölvunni. Their eru alveg horfnir mér. Eins og júlí mánudur er um thad bil ad gera. Vid höfum haft marga góda gesti, etid, drukkid lifad og leikid. En varla gert handtak af viti. En hvad er vit thegar thar ad kemur?
Ég er samt byrjud ad vinna, í afleysingum á geddeild. Thad er fínt. Er ad fara á mína fyrstu hjúkkuvakt á eftir. Verd eina hjúkkan. Kvídi thví adeins, vona bara ad sjúklingarnir taki tillit til mín thannig ad ég thurfi ekki ad thvinga neinn til lyfjatöku, lesist sprauta í rassinn! Er ekki alveg tilbúin í thad, en verd thad á hinn bóginn sennilega aldrei.
Á fimmtudaginn fer ég til Íslands. Thad verdur mikid gaman. Fer alein. Hef ekki gert thad sídan á útmánudum 2001. Sídan eru lidin nokkur ár. Ég er ad fara í brúdkaup. Gudfadir sonar míns ætlar ad ganga ad eiga heitkonu sína í Hallgrímskirkju á Skólavörduholti, Biskup Íslands Herra Karl Sigurbjörnsson mun gefa thau saman. Thetta verdur fornemmt brúdkaup. Ég á ekkert til ad fara í!
Vid systkynin ætlum ad reyna ad setja saman rædustúf eda lítid kvædi sem ég get farid med í veislunni sem haldin verdur eftir giftinguna. Okkur dettur bara ekkert í hug sem vid hæfi er ad segja í fornemmu brúdkaupi! Thad er úr vöndu ad ráda fyrir systkyn!
Fór í gær og hitti bródur minn og skákvini hans. Thad var ekki sem verst. Vid átum sushi og drukkum japanskan bjór med. Drukkum svo danskan bjór og röfludum um skák. Ég kom uppi um mig thegar ég hafdi ekki hugmynd um hvernig uppáhalds afbrigdid mitt í skák er teflt. Sikileyjarvörnin thad er ad segja, ef einhverjir kunnugir skákinni lesa.
Jamm læt stadar numid. Ætla ad ganga frá fyrir Ólann og Björninn sem koma heim á eftir, their hafa undanfarnar tvær nætur gist sænskan kastala. Thad hæfir theim fedgum vel. Hefdarmenn í sér bádir tveir. Ég hlakka til ad hitta thá í kvöld!

1 Comments:

At 2:54 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það lifir...!! Gaman að sjá að hjartað slær enn með góðum takti.

Þú veist hvar okkur systur er að finna, við viljum svo gjarna hitta þig, pant fyrst pant fyrst....

Bróðir bara að standa sig í stykkinu, þetta skákfitl er augljóslega að borga sig, man eftir löngum setum Sigurbjörns við taflborðið sem hafði að okkar mati öðru hlutverki að gegna, nebblega sem húsaskjól fyrir barbí....

 

Skrifa ummæli

<< Home