Enn meiri atvinnuleit.
Glöggir lesendur kunna að hafa rekið augun í það að á þessa síðu hefur ekkert vertið ritað í ríflega viku, og er það ekki í fyrsta sinn!
Ég fékk ekki vinnuna. Fór í tveggja daga þunglyndi fyrir vikið. Velti mér enn einu sinni upp úr eigin ræfildómi, en ákvað svo að halda áfram að vera hress...
Er bara að sækja um stöður og læt næst vita þegar ég er komin með eina slíka. Borgar sig ekki að æra óstöðugan með því að flengja þessu út á veraldarvefinn, ég var sannfærð um að það væri þessvegna sem þetta hefði allt farið fjandans til. Maður á nefnilega ekki að vera stæra sig á því að vera boðaður í viðtal, meiri drambið í konunni að básúna þetta út um víða veröld. Ég ber hér eftir stærilæti mitt í hljóði og gef ekkert uppi fyrr en starf hefur fengist, (nema að það hvíli líka bölvun á því að segja ekki neitt, þá áskil ég mér rétt til þess að breyta).
Vinafólk okkar var að kaupa sér hús hér á Amager, og ég var að tala við hana og svo barst talið að jólum, og allt í einu vissi ég ekkert betra en að eyða jólum í eigin húsi. Varð alveg friðlaus af fögnuði þegar ég ímyndaði mér okkur hjónin orðin ofsa sæt í fallega húsinu okkar með yndisfríðum börnum, og jólin um allt hús, og falleg mússík og þið vitið. Hvít og gyllt og Frá ljósanna hásal óma um stofuna og ég veit ekki hvað. Sé eftir þetta að ég verð að eiga hús til að halda jól í þegar ég er orðin stór!
Á morgun kemur Guðfaðir Björns með sína fjölskyldu, þá verða fagnaðarfundir. Þar til næst, góðar stundir.


4 Comments:
Iss piss, það bíður þín bara eitthvað betra.....
knús
Hulda
Gangi þér vel með að finna vinnu, það er bara svo leiðinlegt meðan á leitinni stendur en það á örugglega eitthvað gott eftir að koma!
Þú veist það dúllan mín að þín er sko ábyggilega þörf einhverstaðar, þeir eiga bara eftir að uppgötva þig og eftir það verður þér ekki sleppt.
Þú getur fengið mitt hús jólin 2006/2007;)
Ingibjörg mín, þetta var æfing, þ.e. æfing í að fara í viðtöl. Ég fór í nokkur solleis. Mjög nauðsynlegt því þegar draumadjobbið dúkkar upp, þá ertu orðin útlærð í atvinnuviðtölum. Gangi þér vel og gleðileg jól (ég fór í hátiðarskap þegar ég las jólakaflann).
Erla
Skrifa ummæli
<< Home