Klukk
Ég hef verið klukkuð, eins og allir hinir. Fjórar einskins nýtar staðreyndir um mig og ein ,,nýt".
1.Ég hef átt lögheimili á 12 stöðum í þremur löndum.
2.Ég hef gist átta höfuðborgir.
3.Ég hef aldrei komið til Vestmannaeyja.
4.Ég hef komið út í Drangey.
5.Ég er komin með vinnu.
Ég klukkan engan, þar sem ég reikna með að vera síðasta manneskjan sem ansa klukki.
Bæti þess í stað linkum inn á síðuna. Ein heitir Sigga og bjó á Öresund, og fyrir nokkrum árum störfuðum við hlið við hlið að félagsmálum Íslendinga í Höfn, hún er enda félagsfræðingur. Önnur heitir Auður og bjó líka á Öresund, en er auk þess með mér í þeim góða saumaklúbbi, Hryssurnar. Auður er læknahryssa og fremst meðal jafningja á því sviði, sem og öðrum sviðum.


9 Comments:
Til hamingju með að vera komin með vinnu!!!
takk.
má kannski linka á þig, fyrst ég er byrjuð?
Til lukku með starfið.
kv. Ragga Dís
8 höfuðborgir... þokkalega kosmópolítan.
ps. Til hamingju með vinnuna!
takk fyrir hamingjuóskir.
inga kosmó óverandát
Til hamingju með vinnuna...hvað ertu að sýsla?
Til hamingju með jobben!! :) Hvar?
Til hamingju með jobben!! :) Hvar?
Skrifa ummæli
<< Home