Í sumarlok
Komin heim, frá Íslandi, Svíþjóð og Jótlandi.
Höfum gert víðreist í sumar. Gengið um götur Reykjavíkur, og tún Þorgrímsstaðabænda, hjólað á sænskum sveitavegum og keyrt á dönskum mótorvegum.
Búin að hafa það sérdeilis gott, hvert með öðru og öllum hinum.
Myndir af gottinu fylgja með til staðfestingar.
Eftir tvær vikur förum við Björninn aftur til Íslands. Í stóðréttir í Skorradal. Víhaa gobbedígobb hvað það verður skemmtilegt. Óli ætlar að vera heima og taka á móti nýnemum í Eskimóafræðum, það þarf einhver að leiða þá í sannleikann um hið ljúfa líf háskólanema í landi allsnægtanna. Við fulltrúar hinna vinnandi stétta og leikskólanemar notum hvert gefið tækifæri til að komast út og upplifa eitthvað nýtt.
Er ekki tilveran dásamleg?!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home