Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

fimmtudagur, mars 30, 2006

Weekendpaket

Á laugardaginn förum við hjónin á hótel, það heitir Klitterhus havsbadhotell og er staðsett við menningarborgina Ängelholm við Eyrarsund. Þetta mun verða fyrsta nótt okkar hjóna á hóteli, við erum enda bara búin að vera gift í tæp fimm ár. Birninum verður komið fyrir hjá Hrafnhildi frænku og Karin frænku og Torbirni frænda og kisunum og litlu kisunum og píanóinu og hestinum og ísnum, eins og upptalningin hljóðar hjá drengnum.
Já já bjart framundan, vorið að koma og bladdíblah.
Björninn kominn inn leikskóla, þann sama og Hrafnhildur og Bergþóra stunda. Við fórum með hann í heimsókn í gær, hann kom inn fann sér ,,ljóta kalla" og hóf leik. Ég held við þurfum ekki að hafa af honum miklar áhyggjur. Kannski þó, þegar ég sýndi honum litlu klósettin sérhönnuð fyrir manneskjur undir 120 sentímetrum benti hann mér réttilega á að hann væri með bleyju og hefði því engin not fyrir þessar skálar! Bleyjubaráttan mikla hefst um páskana.
Við erum annars bara í því þessa dagana fjölskyldan að leika Batman Spiderman og Græna kallinn ljóta (Hulk), sláumst í sófanum, köstum vefjum á allt og fljúgum á milli herbergja.
Tsjaaahhh!

8 Comments:

At 9:29 e.h., Blogger SL said...

OH ædi svona barnlaust dæmi...mæli alveg med tvi!

 
At 11:26 f.h., Blogger Regína said...

øfund øfund

 
At 11:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Góða skemmtun elsku hjón!

 
At 11:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

p.s. biðjum að heilsa græna kallinum ljóta og félögum, þó sérstaklega Birni!

 
At 3:18 e.h., Blogger caselerstrasse said...

já ha má ég þá linka á þig?

 
At 9:05 e.h., Blogger Regína said...

jæja góða, nú er kominn tími á smá blogg, ehaggi?

 
At 12:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

djíses....þið hjónin fóruð vissulega í helgarferð en það var í fokking mars. Er ekki kominn tími á nýja færslu?
Bið annars að heilsa í bili og sjáumst eftir tvær vikur...við köstum allavega kveðju á ykkur áður en við fljúgum alfarið heim.

 
At 2:19 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

vó girl... á ekkert að blogga um hospitallífið og kollegígarðinn... eða er verið að bíða eftir afmæli.. hmmm

ekki það að ég fari ekki yfir í raunheiminn til frétta en... gaman að lesa góð orð frá þér sætust.... h

 

Skrifa ummæli

<< Home