Nú með hátíðablæ
Uppúr fagurgrænu grasinu reisa sig feimnir fíflar sem vita ekki hvort þeim sé boðið að vera með. Morgunfrúrnar eru hnarreistar að vanda og kæra sig kollóta um fíflana, vita að þær eru alltaf sætastar. Páskarunnarnir berjast við að bruma og drekka í sig regnið sem liggur eins og þéttofin slæða yfir borginni, hitamælirinn sýnir 10 gráður, og vindur er stilltur. Það er aðfangadagur jóla, og öndin er komin í ofninn.
Björninn sefur í sófanum, Óli er úti að leita að meira Malti og ég sjálf á leið í jólabað.
Í maí fer ég í fæðingarorlof og í júlí verður Björn Rafnar stóri bróðir.
Gleðileg jól kæru vinir, nær og fjær, Gvuð blessi ykkur og varðveiti ykkur Gvuð láti sína ásjónu skína yfir ykkur og sé ykkur náðugur. Gvuð gefi ykkur farsælt komandi ár. Amen.


4 Comments:
amen
Til hamingju með litla barnið í mallanum:D
Innilega til hamingju með bumbubúann og gleðileg jól.
Elsku Ingibjörg og Óli, innilega til hamingju með litla leigjandann og guð gefi ykkur gleðilegt ár og farsælt komandi ár.
Þökkum ykkur allar yndislegar stundir á liðnum árum.
Jólakveðjur frá Hafdísi, Ólunum og Ísold Brögu.
Skrifa ummæli
<< Home