Septemberfréttir
Það er ekki að gera sig að setja myndir inn á síðuna, ég setti inn nokkrar um daginn, en þær hurfu allar nema ein. Mystískt! Ég er að vinna í því að koma upp myndasíðu, allir voða spenntir fyrir því vænti ég, já, já ekki að spyrja að því...
Björninn er veikur og Úlfurinn kominn á ábót, við hjónin bara feit eins og vanalega. Eitthvað annað að frétta? Jú bara allt gott. Ég fer að vinna 20.júní á komandi ári, þá á ég eftir að halda 7 vikur í sumarfrí, veit ekki hvar ég kem þeim fyrir, síðast vinnudagurinn minn var 30. apríl síðastliðinn. Þetta er mjög langt frí!
Ég uppgötvaði mér til skelfingar að við eigum einungis eftir að búa hér í eitt sumar enn, og tvo vetur, vildi heldur hafa það á hinn veginn. Á þessu eina sumri ,,verðum" við að fara í Legoland, Vimmerby, útilegu, hjólatúr, til Bornholm og á Skagen, skoða Vesterhavet og Møns Klint, sigla á kanó á Furesøen, fara hundrað sinnum á ströndina og hundrað sinnum í Tívolí, halda mörg og góð partý og allt hitt sem við höfum ætlað að gera undanfarin ár. Uss maður ég fæ hjartslátt og svimatilfinningu við tilhugsunina.
Ég sakna vinnunnar, kolleganna og sjúllanna, og þegar ég hugsa um að hætta fæ ég enn meiri hjartslátt!
Úlfurinn er ekki gefinn fyrir að sofa einn. Hann vill annaðhvort að honum sé rúllað í barnavagni, eða vaggað í fangi. Þetta hefur á stundum aukið á hjartsláttinn...
Að öðru leyti er hann fyrirmynd annarra barna, fallegur, skynsamur og góður í alla staði.
Björninn er aumur núna, með hita og verki í sér öllum. Illt í höndum og fótum, höfði og hæl.
Hann hóf nám í dansskóla sl. laugardag og stóð sig með prýði, tók þátt í öllum æfingunum og hneigði sig pent í lokin, ósköp duglegur. Hann er alltaf að segja eitthvað fyndið sem ég ætla að muna, en svo man ég aldrei neitt, þannig að hér birtist ekkert fyndið!
Ólinn er að skanna í skólanum, á skrifandi stund. Hann fékk tölvupóst áðan frá fornleifafræðinema þar sem honum var hótað politianmeldelse ef hann skilaði ekki bókum á bókasafnið innan tilskilins tíma. Enginn lömb að leika við upprenandi fornleifafræðingar. Púha segi ég bara!
Mér finnst mikið vanta nágrannana mína. Það finnst Birni líka, og Óla, ég veit ekki með Úlf, tel samt nokkuð víst að hann sakni guðmóður sinnar og þar með guðsystkyna sinna. Ég sakna líka hinna þorparanna allra sem kvatt hafa síðustu vikur, það er meiri æsingurinn í fólki að vera alltaf að flytja.
Guðmóðirin kemur reyndar í visitasíu á sunnudaginn, það er tilefni til ærlegs kaffiboðs, með miklum og góðum veitingum.
Og á morgun förum við í nýja matarklúbbinn alla leið suður á Tuelandsvej, á föstudaginn er forældrepassedag í leikskólanum og við Úlfur ætlum að passa skrílinn frá 12-3, á laugardaginn förum við í gestaboð til Gyðu og Jans en þá verða þau búin að búa í húsinu sínu í 15 mánuði og halda af því tilefni boð, á mánudaginn kemur sundhedsplejersken og á þriðjudaginn veit ég ekkert hvað gerist.


4 Comments:
Ohhh hvað ég skil þig með allt þetta sem þið þurfið að gera áður en þið flytjið, við gerðum ekkert af þessu, nema kannski partíin hehe.
Ég held að það geti nú ekki farið mikill tími í að sakna granna né guðmu með svona þéttskipaða dagskrá!
En um að gera að fara að brytja súkkulaðið og þeyta eggjahvíturnar, ég er nefnilega alveg að koma...
veiveivei það fjölgar alltaf í dk klúbbnum hérna á íslandinu;)
Ahhh loksins komu jólin...takk!
Skrifa ummæli
<< Home