Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

laugardagur, júlí 21, 2007

Ströndin rúlar!

Það margborgaði sig að skreppa á ströndina og njóta sólarinnar. Níu tímum eftir að við komum heim var litli bróðir kominn í heiminn. Undurfagur og fínn að öllu leyti. Hann fæddist eins og náttúran gerði ráð fyrir að börn fæðist án verkjalyfja eða annarra hjálpartækja en súrefnis í lokin til þess hjálpa honum að halda hjartslættinum við. Ólafur stóð sig eins og hetja, ég bar mig heldur verr í verstu hríðunum ( í bókstaflegri merkingu), en hafði þetta af og var ósköp fegin þegar litla skonsið spýttist út og lét í sér heyra í fyrsta sinn.
Dagarnir áður en hann fæddist voru sérlega viðburðarríkir, og dagarnir eftir að hann kom ekki síðri, bara annað tempó. Við höfum haft það ótrúlega gott eftir að heim var komið, Óli dekrar við fjölskylduna alla jafnframt því að steikja pönnukökur ofan í gesti og heimta aðföng, og auðvitað vera hress!!! Honum launast þetta seinna.
Litli maðurinn drekkur oft og vel og finnst einna best að liggja við. Björn Rafnar sýnir bróður sinn stoltur, opnar fyrir hann gjafirnar og kyssir hann þegar við bendum honum á það, að öðru leyti er hann ekkert mikið að kássast utan í honum.
Sjálf sit ég eða ligg og leyfi mér að týnast í brjóstaþoku og sælutilfinningunni sem fylgir því að horfa á hvítvoðunginn vaxa og dafna.
La dolce vita!

1 Comments:

At 10:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Skál fyrir þér og þínum Inga mín. Sjáumst svo þegar þið komið á klakannn. kveðja Björkin

 

Skrifa ummæli

<< Home