Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

fimmtudagur, maí 17, 2007

Á leið í flugferð

Við litla manneskjan, sem er núna ríflega 31 vikna, erum á leið til Austurríkis. Þar ætlum við að dvelja í sex daga, og gera fátt annað en sóla okkur, blaðra, lesa og næra okkur. Ég hlakka til, sú litla er ekki spurð!
Björninn ungi var í burtu frá foreldrahúsum í síðustu viku. Hann fór í sveitaferð með leikskólanum og gisti í þrjár nætur. Það fór vel um hann, en okkur þótti tómlegt hér heima.
Ólafur eskimóanemi er á heimleið í næstu viku, þar sem hann ætlar að dveljast í nokkra daga við leik.
Fjölskyldan gerir víðreist áður en strengurinn milli mín o g litlu manneskjunnar verður klipptur.

Ég er í sumarfríi, og hef ekki athafnað mikið. Er þó búin að kaupa ryksugu, sem telst til afreka, og ýmislegt annað hefur verið keypt og spanderað í. Það kostar mikið að vera heimavinnandi!

4 Comments:

At 11:42 f.h., Blogger SL said...

Góða skemmtun þið mæðgur/mæðgin, hlakka til að sjá ykkur í sumar!

 
At 11:24 e.h., Blogger Frú Elgaard said...

Hej, það væri núljómandi að fá eskimóanemann í heimsókn á Suðurgötuna. Ég er með fulla tösku af pelum sem ég þarf að koma til þín... Og jú svo væri nú bara svo gott að sjá kallinn það er svo langt síðan síðast.

 
At 12:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ og til hamingju með bumbubúann mikla. Hann/hún er barasta að koma í heiminn það er nú ekki slæmt. Skemmtið ykkur vel í Austerrike. Knús og kossar og góðar kveðjur frá okkur hér í Grænukinn 9.

 
At 6:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

jájá.... svona er þetta.... ég vona þú sólir þig varlega..... og skemmtir þér stillt..... hlakka til að heyra ferðasögu.... og að fá ryksugu lánaða því ég finn ómögulega ryksugupokana mína sem fóru á góða staðinn....

 

Skrifa ummæli

<< Home