Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

þriðjudagur, júní 12, 2007

Áætlaður komutími eftir 33 daga.

Barnsburður nálgast, og móðurlegar áhyggjur aukast í takt. Draumarnir farnir að snúast um þekkt kæruleysi mitt og gleymsku. Dreymdi endileysu í nótt um litla stúlkubarnið sem ég var sífellt að gleyma alls staðar, og svo loks þegar ég mundi eftir að taka hana með, þá gleymdi ég að gefa henni að drekka, nú eða að skipta á henni og annast um hana. Skammaðist mín í draumnum en ekki nógu mikið til þess að muna eftir barninu þegar ég hélt á næsta áfangastað. Vona að ég upplifi þetta aldrei í veruleikanum!
Annars bara heitt, gott á ströndinni en slæmt í borginni. Óli lærir og lærir, Björn leikur og lærir. Grætur hræðilega ef honum blæðir en hlær innilega ef einhver kitlar hann.
Heimilsframkvæmdir hefjast í næstu viku að loknum verkefnaskilum hjá Óla. Búið er að fjárfesta í nýju rúmi, boxdýnu sem rúmast betur í hornskökku herbergi. Þá á eftir að kaupa rúm handa litla sílinu og hillur handa Birninum. Að innkaupum loknum hefjast svo milliherbergjaflutningar sem vonandi enda með því að sæmilega fari um alla fjölskyldumeðlimi og allt þeirra hafurtask.

Júbbs og svo fór ég til Austurríkis og komst í 2440 metra hæð. Þá fannst mér ég hátt uppi...

2 Comments:

At 1:08 f.h., Blogger Pollyanna said...

Ég er búin að ráða þennan draum. Þú verður ofurmamma og gleymir aldrei neinu. Ekki nóg með það heldur verður þú alltaf með tvennt af öllu og getur lánað hinum mömmunum sem að gleyma öllu.

 
At 9:35 e.h., Blogger bjorn said...

ahh já takk pollýanna!

 

Skrifa ummæli

<< Home