Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Nýjar myndir

Það eru komnar nýjar myndir, sjá hlekk neðst í hlekkjaröðinni. Þær eru ekki í réttri tímaröð, Þær síðustu koma fyrstar, sem er rökrétt en virkar ekki alveg þegar verið er að setja myndirnar inn. Vera má að til sé lausn á þessu og einhver geti bent mér á hana?
Annars allt gott, Úlfurinn er ekki lengur nýburi, hann er krakki, Björninn er stundum líkari unglingi en krakka, sjálf er ég að mestu í samræmi við aldur.
Ísland var skemmtilegt, við hittum ekki nærri því alla sem við vildum hitt hafa, en svoleiðis er það, og ekki hægt að láta sér líða illa yfir því.
Í dag voru fimm vikur til jóla!

6 Comments:

At 1:49 e.h., Blogger SL said...

Hann er yndislegur eins og þið öll. Mjög sniðugt halloj þetta græna sem maður setur á stól og Úlfur situr í!

 
At 10:49 f.h., Blogger Heiðrún said...

Jæja, þá er ég búin að þvo skyrtuna þína. Með þessu áframhaldi tekst mér líklega að strauja hana fyrir nýárið...
sakn'ykkar

 
At 11:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

...og ég fann loksins vettlinginn Björnsins! á reyndar eftir að strauja hann...
Þegar próftíðin hellist yfir, eins og nú, vildi ég vera allt annarsstaðar t.d. á Öresunds að drekka kaffi og lesa gömul slúðurblöð.

 
At 2:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

mikið eruð þið myndarlegar.ég er bara í kaffinu og íslenska slúðrinu, þarf að herða mig upp í því danska.
sakna ykkar allra líka, það er ekki það sama að vera í fæðingarorlofi án ykkar.
i

 
At 12:17 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá hann er orðin stór krakki;) ég á einmitt krakka og ungling en ég er samt alltaf bara stelpa;)

 
At 12:37 e.h., Blogger Unknown said...

Ég hélt að heimavinnandi ungbarnamömmur hefðu ekkert annað að gera en að blogga um dagdrauma sína, bleyjur og bollaleggingar.
Boy Was I Wrong!

 

Skrifa ummæli

<< Home