Veist að gleðin er besta víman?
Ég er hér. Og ég held ég sé bara farin að sofa. Þetta er orðið svo mikið rugl allt saman, að það borgar sig ekki að segja neitt um það. Hátta sig bara og sofa svoldið í hausinn á sér.
Úlfur á stórleiki þessa dagana, næstum farinn að sitja og segir ba og vaba og finnst gaman að vaka á kvöldin.
Björn er meiri svona morgunmaður og er löngu farinn að sitja, hann kann líka að segja ýmislegt, og syngja líka og svo á hann kærustu og er afskaplega trúr henni.
Framundan eru afmæli í röðum, heimsóknir hingað og við þangað og ýmislegt annað.
Óli er búinn í prófum og ég fer að vinna eftir fimm mánuði.
Mig langar í disk með Mannakornum.
Annað? Nei ég held ekki í bili.


4 Comments:
Hvað er svona mikið rugl?
bara borgarrugl og annað almennt rugl á íslandi.
já það:D
ég óska þess að þú bloggir meira...
Skrifa ummæli
<< Home