Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

þriðjudagur, mars 18, 2008

Veturkoma

Vor á sunnudaginn og vetur í gær. Hér snjóaði í gær og frysti í nótt svo að í dag er jörðin hvít og himinninn blár.
Björninn er í páskafríi og nýtur þess núna að horfa á morgunsjónvarp. Á fimmtudaginn förum við til Vestur- Jótlands í sumarhús með Fjalar Family. Fundur í gær um það hver ætti að kaupa hvað, mér virðist þetta ætla að verða mikil veisla!
Úlfur er ekki búinn að læra að vinka, klappa eða vera stór, en hann fer á fjóra fætur og lyftir rassinum upp í brú.
Sáum í ,,Nöfn Íslendinga" að Snorri þýðir; Urrar, skemmtilegt að segja frá því.
Bráðum förum við út að kynna Úlfinn Urrandi fyrir snjónum, og leyfa Birninum Krúnkandi að velta sér og dröslast.

1 Comments:

At 8:20 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

krúnkandi urr til ykkar yfir páskana.... hlýja. h og í

 

Skrifa ummæli

<< Home