Aevintyri Bjornsins

Bloggad fyrir barnid

mánudagur, janúar 26, 2004

Jammjammjammjammjamm! Húni litli aftur slappur í dag, og var það reyndar síðasta mánudag líka. Mánudagsveiki einhver.
Við fórum til Svíþjóðar á föstudag. Faðir til að sækja björg í bú og móðir til að sýna Björninn og vera í vellystingum hjá frænku í Lundi. Afskaplega notalegt. Björninn smakkaði lax og smjattaði á honum. Fannst hann greinilega góður. Enda eru Birnir yfirlýstir laxaaðdáendur.
Hann átti að fara í pössun í dag, þe. aðeins að heilsa upp á Elínu sem ætlar að passa hann og Hrafnhildi sem verður í pössun með honum, en það var hætt við það sökum slappleikans sko. Fer vonandi á morgun aðeins til að heilsa upp á þær. Nú er nefnilega ekki nema vika þar til Óli fer að vinna og Björninn í pössun.