fimmtudagur, maí 22, 2008
Smá fréttaskot. Eða smáfréttaskot
Úlfabarnið er komið með pláss á vöggustofu og byrjar 1.júní.
Ég fer að vinna 20.júní. Þessi tími er senn á enda runninn.
Við, þe. ég og rándýrin fórum til Sönderborgar um nýliðna helgi og heimsóttum þar gamla og góða granna. Það var notaleg ferð í alla staði. Gestrisni þeirra Karenar og Jespers er með eindæmum og minnti á gömlu góðu dagana í L102 (ég er dyggur lesandi matthias.is). Við fórum í sund í Aabenraa og snæddum Natsjós í Gato auk alls hins sem við átum og drukkum á heimili þeirra sambýlinga, allt var þetta prýðilegt. Úlfurinn debúteraði í sundi og stóð sig vel, var aðeins smeikur í fyrstu en endaði á því að skvetta viðstöðulaust og setti hausinn undir sig svo hann næði að smakka á skvettunum. Björninn var hress og renndi sér margoft í rennibrautinni, aleinn! og hoppaði af bakkanum út í djúpu laugina.
Framundan hjá okkur er að halda afmæli húsbóndans hans Ólafs míns, það verður haldið í bland við konunglegt brullaup og evróvisjón komandi laugardag. Svo þarf hann að læra undir próf og fara í það 2. júní og ég ætla á Vorfögnuð með vinnufélgögum 30.maí og svo ætlum við sennilega að heimsækja Vimmerby helgina 6.-8. júní með matarklúbbnum nýja, og með sama fólki ætlum við í rolluspil síðustu helgi í júní og svo fer ég í sumarfrí í viku fyrstu helgina í júlí og þá þurfum við að gera eitthvað og svo og svo og svo...
Nóg að gera á bænum og gaman að því.
Ég bý yfir leyndarmáli, tíhíhí og ætla ekki að segja neinum...

